Egill Árnason ehf
Egill Árnason ehf

Söluráðgjafi

Egill Árnason ehf. er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og ráðgjöf á gólfefnum, byggingavörum og tengdum lausnum fyrir einstaklinga sem og fagfólk.

Við leitum af metnaðarfullum einstaklingi til að starfa sem ráðgjafi í okkar öfluga teymi.

Starfið snýst fyrst og fremst um að veita faglega ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina sem leita af gólfefnum og tengdum vörum. Við leggjum mikla áherslu á þekkingu á vörunum sem við bjóðum, góð samskipti og fagleg vinnubrögð.

Við erum ekki hefðbundnir "sölumenn". Hlutverk okkar er að skilja þarfir viðskiptavina, miðla réttri þekkingu og hjálpa fólki að velja réttu lausnina fyrir sitt verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kynna sér vel vörur og lausnir sem fyrirtækið býður upp á og byggja upp góða þekkingu á þeim
  • Taka á móti viðskiptavinum og leiðbeina þeim í verslun með faglegri ráðgjöf
  • Veita upplýsingar um vörur, lausnir og svara spurningum viðskiptavina
  • Gera tilboð, upplýsa um birgðastöðu og aðstoða við val á réttum vörum
  • Panta vörur eftir þörfum og fylgja vel eftir pöntunum
  • Halda utan um samskipti við viðskiptavini og tryggja góða eftirfylgni
  • Aðstoða við önnur verkefni eftir þörfum, m.a. á lager eða í öðrum þáttum rekstrar
  • Sjá um hreinlæti, skipulag og almenna umhirðu verslunarinnar
  • Taka þátt í tiltekt, uppsetningu og endurskipulagningu þegar þess þarf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund
  • Metnaður til að tileinka sér þekkingu á vörum og lausnum
  • Skipulögð vinnubrögð og ábyrgð
  • Reynsla af þjónustu eða ráðgjöf er kostur
  • Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
Fríðindi í starfi

Kjör og hlunnindi eru samkvæmt samkomulagi og rædd nánar í ráðningarferlinu.

Advertisement published16. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.Quick learnerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.Non smokerPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.NeatnessPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Working under pressurePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags