Innnes ehf.
Innnes ehf.
Innnes ehf.

Sölumaður hjá Innnes

Um er að ræða sölu á matvöru og tengdum vörum til fjölbreytts hóps viðskiptavina á fyrirtækjasviði; stofnana, mötuneyta, veitingastaða, hótela og fleiri.Í boði er krefjandi og spennandi starf fyrir einstakling þar sem reynir á góða þjónustulund, söluhæfileika og frumkvæði.


Helstu verkefni:

  • Sala og ráðgjöf til fyrirtækjaviðskiptavina.
  • Framúrskarandi þjónusta og eftirfylgni.
  • Uppbygging og viðhald góðra viðskiptasambanda.
  • Kynning á nýjum vörum og lausnum fyrir viðskiptavini.


Við leitum að einstaklingi sem

  • Hefur reynslu af sölu eða brennandi áhuga á sölustörfum.
  • Hefur þekkingu á matvörum eða mikinn áhuga á mat og matargerð.
  • Er hugmyndaríkur, drífandi og nýtur þess að ná árangri.
  • Hefur framúrskarandi samskiptafærni, þjónustulund og faglega framkomu.
  • Er sjálfstæður, samviskusamur og stundvís.
  • Hefur góða tölvukunnáttu og góða íslenskukunnáttu.
  • Er 20 ára eða eldri.
  • Er reyklaus og getur framvísað hreinu sakavottorði.


Vinnustaðurinn Innnes

Innnes er eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins í matvöru og víni og leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini sína með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.

Boðið er upp á fyrirmyndar vinnuumhverfi þar sem boðið er upp á mötuneyti með heitum mat og ýmis fríðindi eins og heilsuræktarstyrk, samgöngustyrk, öflugt félagslíf og fleira. Innnes starfrækir vottað jafnlaunakerfi í samræmi við jafnréttis- og launastefnu fyrirtækisins og við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð kyni, uppruna o.s.frv.


Umsóknarfrestur er til og með 26. júlí 2026.

Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningavef Innnes. Umsókn skal fylgja ferilskrá með mynd (CV) á Word- eða PDF-formi ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvers vegna þú ert rétti aðilinn í starfið.Nánari upplýsingar veitir Vigdís Ylfa Hreinsdóttir, sölustjóri, í tölvupósti [email protected]. Vinsamlegast athugið að ekki eru veittar upplýsingar í síma.

Advertisement published15. July 2026
Application deadline26. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Ambition
Work environment
Professions
Job Tags