
Heimilistæki ehf
Heimilistæki reka fimm verslanir víðsvegar um landið; í Reykjavík, Selfossi, Reykjanesbæ, Akureyri og Egilsstöðum.
Markmið Heimilistækja er að bjóða upp á framúrskarandi vöruúrval sambærilegt því sem gerist í stærstu verslunum erlendis en á sama tíma að veita mjög góða og persónulega þjónustu.
Verslanir Heimilstækja eru hluti af Heimilistækja fjölskyldunni sem á og rekur fjölbreyttar verslanir um land allt. Verslanir samstæðunnar eru Heimilistæki, Tölvulistinn, Rafland, Byggt og búið, Kúnígúnd og Iittala búðin en auk þess rekur fyrirtækið heildsöluna Ásbjörn Ólafsson, Raftækjalagerinn og verkstæði. Hjá samstæðunni starfa tæplega 200 starfsmenn í fjölbreyttum störfum þar sem lögð er áhersla á jákvætt starfsumhverfi og vinalegan starfsanda.

Sölufulltrúi - Sumarstarf/Hlutastarf um helgar
Heimilistæki óska eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf um helgar og í sumarstarf í sumar. Um er að ræða helgarvaktir aðra hverja helgi, laugardaga 11-16 og sunnudaga 13-17 og fullt starf 10-18 virka daga frá júní til ágúst. Einnig eru í boði aukavaktir virka daga á álagstímum yfir vetrartímann.
Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskiptavini verslunarinnar þar sem rík áhersla er á ráðgefandi sölu og góða upplýsingamiðlun ásamt framúrskarandi þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðslu- og sölustörf ásamt framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini verslunarinnar.
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum verslunarinnar.
- Áfyllingar og framstillingar.
- Móttaka og afhending á vörum.
- Þrif í verslun.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustörfum mikill kostur.
- Þekking og áhugi á tölvum, raf- og heimilistækjum.
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni.
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður.
- Mjög góð íslensku og ensku kunnátta.
Advertisement published3. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Suðurlandsbraut 26, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
Customer checkoutHonestyClean criminal recordAmbitionNon smokerConscientiousSalesPunctualNo tobaccoNo vapingCustomer service
Suitable for
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sölufulltrúi
Á91 ehf.

Sölumanneskja
Core Ehf

Fullt starf hjá Gæludýr.is á AKUREYRI
Waterfront ehf

Sölufulltrúi - fullt starf
Freyja

Sölumaður / Útkeyrslumaður
Góa-Linda sælgætisgerð

Umsjón með sölusvæði
Coca-Cola á Íslandi

Söludrifinn starfsmaður í sölu og afgreiðslu óskast
Málmsteypan

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust

Sölustjóri Papco hf Akureyri
Papco hf

Þjónustufulltrúi
Norðurorka hf.

Lava Front Desk Service | Part Time Reykjavik
Lava Show

Sölufulltrúi í Bústoð og Snúrunni í Garðabæ
Bústoð ehf