Rarik ohf.
Rarik ohf.
Rarik ohf.

Skrifstofustjóri á Suðurlandi - virkjaðu mannauðinn með okkur!

Við leitum að mannblendinni og talnaglöggri manneskju sem nýtur þess að vinna með fólki og skapa góða orku á vinnustaðnum. Hér sameinast verkefni á sviði mannauðsmála og fjármála þar sem góður starfsandi og starfsaðstaða er forgangsverkefni. Fylgdu straumnum til okkar og virkjaðu þína krafta til framtíðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skrifstofustjórar okkar starfa í hverjum landsfjórðungi og gegna fjölbreyttu hlutverki auk þess að vera nokkurs konar fulltrúar fyrirtækisins í sínum fjórðungi, t.d. gagnvart samfélögum á svæðinu. Verkefni skrifstofustjóra okkar eru margvísleg og snúa meðal annars að fræðslu og aðbúnaði starfsfólks og mannauðsmálum almennt. Þeir taka einnig þátt í skipulagningu viðburða og kynninga og móttöku gesta og skólahópa. Auk þess hafa skrifstofustjórar okkar umsjón með ýmis konar uppgjörum og kostnaðarlegri ábyrgð og eftirliti og styðja við fjármálasvið á sínum svæðum. Þetta er sannarlega rétta starfið fyrir þau sem vilja vera inni í öllu og njóta þess að vinna með fólki.   

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að skipulagðri og viðmótsþýðri manneskju með metnað og reynslu þegar kemur að mannauðsmálum, breytingastjórnun og eflingu góðra samskipta til að þjóna starfsfólki okkar og viðskiptavinum á Suðurlandi. Við viljum fá kraftmikla og sjálfstæða manneskju sem hefur hugmyndaflug og frumkvæði til að leiða bæði fólk og verkefni áfram. Umsækjendur ættu að hafa brennandi áhuga á því að móta jákvæða vinnustaðarmenningu og efla hag og velferð bæði starfsfólks og fyrirtækisins. Mikilvægt er að umsækjendur hafi menntun sem nýtist í starfi, reynslu af mannauðsmálum og gott auga fyrir tölum. 

Advertisement published19. March 2026
Application deadline6. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Larsenstræti 4
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags