Egilsstaðaskóli
Egilsstaðaskóli
Egilsstaðaskóli

Skólaliði í 80% starf

Egilsstaðaskóli auglýsir eftir skólaliða. Starfið er 80% hlutastarf.

Ráðið er í starfið frá 15. ágúst 2026.

Skólaliði sinnir gæslu í frímínútum og annast þrif á húsnæði og eigum skólans. Hann leiðbeinir nemendum í samskiptum og umgengni. Skólaliði sinnir öðrum þeim störfum sem skólastjóri felur.

Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Í Egilsstaðaskóla eru rúmlega 400 nemendur. Einkunnarorð skólans eru gleði, virðing og metnaður og endurspeglast þau í daglegu starfi, samskiptum og skólabrag.

Í skólanum er áhersla á vellíðan, farsæld og árangur allra nemenda og starfsfólks. Unnið er að innleiðingu hugmyndafræði Heillaspora og Leiðsagnarnáms og gæða kennslu. Unnið er eftir hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar.

Áhersla er jákvæð samskipti, virka þátttöku nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Undanfarið hefur skólinn unnið að verkefninu „Sterkir hópar“ þar sem markmiðið er að styrkja jákvæðan anda í nemendahópunum og efla þannig forvarnir gegn einelti, samskiptavanda og meiðandi samskiptum.

Í skólanum er teymiskennsla og teymisvinna og rík samvinnumenning meðal starfsfólks. Í skólanum er áhersla á list- og verkgreinar og einstaklingsmiðað nám.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgjast með og aðstoða nemendur í leik og starfi
  • Almenn þrif á skólahúsnæði
  • Almenn gæsla í frímínútum og hádegi
  • Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta
  • Frumkvæði og metnaður í starfi
  • Jákvætt og lausnarmiðað viðhorf til verkefna
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð
  • 18 ára og eldri
Advertisement published12. May 2026
Application deadline26. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Tjarnarlönd 11, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags