
Hrafnista
Hrafnista er stærsta hjúkrunarheimili landsins og alls eru heimilin átta talsins í fimm sveitarfélögum. Þau eru Hrafnista Laugarási, Hraunvangi, Boðaþingi, Ísafold, Skógabæ, Sléttuvegi, Hlévangi og Nesvöllum.
Hjá Hrafnistu starfar öflugur hópur einstaklinga með fjölbreytta menntun, starfsreynslu og með fjölbreyttan bakgrunn.
Ef þú hefur áhuga á að bætast í Hrafnistuhópinn skaltu endilega senda inn umsókn,
Hlökkum til að heyra frá þér.

Sjúkraþjálfari í endurhæfingarteymi
Hrafnista óskar eftir sjúkraþjálfara í öflugt endurhæfingarteymi á Ísafold, Boðaþingi og Skógarbæ. Endurhæfingarteymið samanstendur af sjúkra- og iðjuþjálfum ásamt aðstoðarfólki á hverju heimili. Um er að ræða fjölbreytt starf sem býður upp á mikinn sveigjanleika og öfluga liðsheild ásamt mótun og þróun á starfinu
Um 80-100% starf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greining, endurhæfing, þjálfunaráætlun og skráning
- Tekur þátt í skipulagningu endurhæfingar á deildum
- Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
- Fræðsla fyrir íbúa og starfsfólk
- Teymisvinna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Landlæknisembættinu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð skipulagshæfni
- Faglegur metnaður
- Jákvæðni og frumkvæði í starfi
Advertisement published2. October 2025
Application deadline12. October 2025
Language skills

Required
Location
Boðaþing 5-13, 203 Kópavogur
Árskógar 2, 109 Reykjavík
Strikið 3, 210 Garðabær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags