Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð er miðlæg þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem starfar á þverfaglegum grunni og sinnir börnum að 18 ára aldri hvar sem þau búa á landinu. Hlutverk hennar er m.a. að annast greiningu og ráðgjöf vegna barna með víðtækar þroskaraskerðingar, sinna fræðilegum rannsóknum á þessu sviði og veita börnum með venjuflóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. Öflun og miðlun þekkingar og þroskaskerðingar og fræðsla um helstu íhlutunarleiðir er enn fremur meðal hlutverka stofnunarinnar.
Sjúkraþjálfari
Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara á sviði Langtímaeftirfylgdar. Á sviðinu er veitt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri sem þurfa sérhæfða eftirfylgd og ráðgjöf. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mat, ráðgjöf og eftirfylgd á sviði hreyfifærni og þátttöku fatlaðra barna og unglinga
- Mat á hreyfifærni barna með viðurkenndum próf- og matstækjum
- Ráðgjöf til barna, fjölskyldna þeirra og annarra fagaðila t.d. á sviði daglegrar færni, notkunar hjálpartækja og aðgengi
- Öflun þekkingar á tæknilausnum og hjálpartækjum fyrir markhóp stofnunarinnar
- Gerð umsókna og skýrslna
- Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
- Þátttaka í rannsókna- og fræðslustarfi innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
- Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Advertisement published21. October 2024
Application deadline28. October 2024
Language skills
IcelandicVery good
Location
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (1)