Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli - náms- og starfsráðgjafi

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða náms- og starfsráðgjafa í fullt starf frá 1. ágúst 2026. Um er að ræða tímabundna afleysingu í eitt ár.

Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru rúmlega 260 nemendur. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allt starfsfólk vinnur saman að því að byggja upp fjölbreytt og skapandi skólastarf með áherslu á útinám. Aðstaða starfsfólks og nemenda er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að standa vörð um nám og velferð nemenda
  • Að veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur
  • Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
  • Að veita ráðgjöf og fræðslu um náms- og starfsval
  • Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
  • Heldur utan um og stýrir samskiptateymi skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Reynsla af námsráðgjöf og starfi með börnum er æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun og skipulagshæfileikar
  • Faglegur metnaðu

*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun kemur til greina að ráða annan hæfann starfsmann.

Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Advertisement published6. May 2026
Application deadline19. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Langalína 8, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Independence
Professions
Job Tags