Icelandia
Icelandia
Icelandia

Sérfræðingur í samfélagsmiðlum

Við leitum að sérfræðingi í samfélagsmiðlum til að efla og vernda vörumerkjafjölskyldu Icelandia á samfélagsmiðlum. Undir hana falla Icelandia, Reykjavik Excursions, Icelandic Mountain Guides, Dive.is, Flybus og Gray Line Iceland. Hvert vörumerki hefur sína rödd og sinn markhóp. Í hlutverkinu felst að halda þeim öllum lifandi, áreiðanlegum og auðþekkjanlegum.

Verkefnið er sömuleiðis að fanga stórbrotið landslag í nánu samstarfi við leiðsögumenn, efnishöfunda og ytri samstarfsaðila. Þú hefur svigrúm til að móta stefnuna og koma með hugmyndir í samstarfi við markaðsstjóra og teymið í kringum þig.

Starfið heyrir undir markaðsstjóra og hentar vel þeim sem eru sjálfstæð í vinnubrögðum og vilja hafa raunveruleg áhrif á ásýnd og vöxt fjölbreyttra vörumerkja.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stefnumótun, hugmyndavinna og efnissköpun fyrir samfélagsmiðla.
  • Framleiðsla og utanumhald efnis: skipulagning, myndataka og klipping.
  • Umsjón með samstarfi við efnishöfunda og áhrifavalda.
  • Greiningarvinna, vöktun og skýrslugerð.
  • Þátttaka í innra og ytra markaðsstarfi.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi er kostur.
  • Góð reynsla í stafrænni markaðssetningu, þar með talin umsjón með fleiri en einu vörumerki.
  • Mikil þekking á helstu samfélagsmiðlum, þ.e. Facebook, Instagram, YouTube, TikTok, LinkedIn o.fl.
  • Mjög gott vald á ensku og hæfni til að skrifa texta.
  • Sköpunargleði og gott auga fyrir efnissköpun, þar á meðal myndbandagerð.
  • Ljósmyndafærni er kostur.
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðað viðhorf.
  • Góð samskiptafærni og metnaður til að ná árangri.
  • Sveigjanleiki til að ferðast og vinna á vettvangi þegar þörf krefur.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og skapandi verkefni í vaxandi vinnuumhverfi.
  • Góð vinnuaðstaða, frábærir samstarfsfélagar og sveigjanleiki.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
Advertisement published13. November 2026
Application deadline29. November 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Optional
Intermediate
Location
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Facebook Business ManagerPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.Google AnalyticsPathCreated with Sketch.Analytical skillsPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.VideographyPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Content writingPathCreated with Sketch.TikTokPathCreated with Sketch.Brand management
Professions
Job Tags