VÍS
VÍS
VÍS

Sérfræðingur í markaðssetningu – tímabundið starf

Við leitum að skapandi og drífandi sérfræðingi í markaðssetningu til að ganga til liðs við öflugt markaðsteymi VÍS í afleysingu vegna fæðingarorlofs. Starfið hentar vel einstaklingi sem vill stíga sín fyrstu skref í starfi í markaðsdeild, öðlast dýrmæta reynslu og fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum og sýnilegum verkefnum fyrir eitt þekktasta vörumerki landsins.

Megináhersla starfsins er á efnissköpun samfélagsmiðla, en þú tekur jafnframt þátt í fjölbreyttum verkefnum markaðsdeildarinnar.

Ráðningartímabilið er frá 1. janúar 2027 til 15. nóvember 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hugmyndavinna, skipulag og framkvæmd efnissköpunar fyrir samfélagsmiðla og aðra stafræna miðla.
  • Gerð efnis sem vekur athygli og styrkir vörumerki VÍS.
  • Aðstoða við gerð og utanumhald efnisáætlana og birtinga.
  • Samskipti og samstarf við ytri aðila, svo sem framleiðendur, áhrifavalda, hönnuði og birtingastofu.
  • Fylgjast með og taka þátt í greiningu á árangri efnis og markaðsaðgerða.
  • Þátttaka í öðrum verkefnum markaðsdeildarinnar, til dæmis herferðum, viðburðum og innri markaðssetningu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði markaðsmála, viðskipta, miðlunar eða sambærilegra greina.
  • Reynsla eða mikill áhugi á markaðsmálum, samfélagsmiðlum og efnissköpun.
  • Góð tilfinning fyrir því hvað virkar á stafrænum miðlum og áhugi á þróun þeirra.
  • Hæfni til að skrifa skýran, lifandi og vandaðan texta á íslensku.
  • Frumkvæði, sköpunarkraftur og vilji til að læra.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna með ólíkum einstaklingum.

Það er kostur ef þú getur sýnt okkur dæmi um efni sem þú hefur skapað, hvort sem það er í starfi, námi eða eigin verkefnum.

Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að öðlast sterka og hagnýta reynslu af starfi í markaðsdeild.
  • Fjölbreytt verkefni og svigrúm til að koma hugmyndum í framkvæmd.
  • Stuðning og samstarf í skapandi og metnaðarfullu markaðsteymi.
  • Framúrskarandi vinnustaðamenningu og öflugt starfsmannafélag.
  • Aðgangur að góðu mötuneyti
  • Aðgang að orlofshúsum, golfklúbbi, rafmagnsbílastæðum, hjólageymslu og sturtu- og búningsaðstöðu.
  • Samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.
  • Tækifæri til að vaxa og dafna – í lífi og starfi.
Advertisement published10. November 2026
Application deadline22. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Ármúli 3, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Content writing
Professions
Job Tags