Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands

Sérfræðingur í hugbúnaðarþróun með áherslu á gervigreind

Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan forritara í teymi hugbúnaðarþróunar. Við leitum að öflugum einstaklingi með reynslu af fram- og bakendaþróun og áhuga á að þróa nýjar leiðir við hugbúnaðargerð með sjálfvirkni og gervigreind.

Hugbúnaðarþróun er teymi innan deildarinnar þróun og gagnahögun á sviði upplýsingatækni. Teymið vinnur að þróun, viðhaldi og rekstri hugbúnaðarlausna og gagnaumhverfis bankans. Starfið spannar allt þróunarferlið frá þarfagreiningu og hönnun til útfærslu og rekstrar. Áhersla er lögð á að leggja fram og meta ólíkar leiðir til úrlausnar í samstarfi við hagaðila.

Við leitum að einstaklingi sem sýnir frumkvæði og er viljugur til að kanna hvernig nýta megi gervigreindarerindreka með öruggum hætti við hugbúnaðargerð. Viðkomandi tekur einnig þátt í að móta og þróa hvernig megi hagnýta gervigreind og sjálfvirkni í daglegum rekstri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þarfagreining og hönnun hugbúnaðarlausna ásamt þróun fram- og bakenda.
  • Sinna viðhaldi, uppfærslum og áframhaldandi umbótum á lausnum í rekstri.
  • Samþætting hugbúnaðarlausna við önnur kerfi og gagnaþjónustur.
  • Hagnýting sjálfvirkni og gervigreindar í lausnum og þróunarferlum, meðal annars með gervigreindarerindrekum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegra greina.
  • Sterk forritunarfærni og haldgóð reynsla af hugbúnaðarþróun í .NET og vinnu með SQL, þar á meðal fram- og bakendaþróun.
  • Reynsla af þarfagreiningu og hönnun hugbúnaðarlausna og hæfni til að greina verkefni og meta ólíkar lausnaleiðir.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og drifkraftur til að koma hugmyndum í framkvæmd og fylgja verkefnum eftir.
  • Áhugi á og reynsla af hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirkni í hugbúnaðarþróun.
  • Þekking á stórum mállíkönum og hvernig nýta má þau í hugbúnaðarlausnum.
  • Reynsla af þróun gervigreindarerindreka og tengingu mállíkana við gögn og kerfi í gegnum forritaskil (API) er kostur.
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að útskýra tæknileg viðfangsefni á íslensku og ensku.
Advertisement published24. November 2026
Application deadline30. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Kalkofnsvegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Artificial intelligence
Professions
Job Tags