VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur við hönnun veitukerfa

Vilt þú stuðla uppbyggingu veituinnviða sem tryggja hreint vatn, skilvirk fráveitukerfi og sjálfbæra innviði samfélagsins? Við leitum að sérfræðingi við hönnun veitukerfa á sviði byggðatækni.

Um starfið

Sem sérfræðingur við hönnun veitukerfa munt þú m.a. vinna við:

  • Hönnun veitukerfa: Verkefnastjórn, hönnun vatns-, hita- og fráveitu ásamt almennri ráðgjöf og eftirfylgni á byggingartíma.
  • Áætlanagerð: Gerð kostnaðar- og verkáætlana vegna veituframkvæmda og undirbúnings þeirra.
  • Gerð útboðsgagna: Gerð verklýsinga, og annarra gagna fyrir útboð innviðaframkvæmda.
  • Skýrslugerð: Ýmsar greiningar og gagnaúrvinnsla á fagsviði veitukerfa.

Hæfniskröfur
Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:

  • Menntun: Menntun á sviði verkfræði, tæknifræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Sérfræðimenntun tengd veitukerfum er kostur.
  • Reynsla: Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg, en ekki skilyrði.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð: Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
  • Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli.

Hvað bjóðum við?
Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:

  • Tækifæri til að leiða í mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
  • Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Líflegt félagsstarf.

Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/

Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið [email protected], merktar Veitukerfi.

Advertisement published11. May 2026
Application deadline31. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Work environment
Professions
Job Tags