
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Sérfræðingur í vinnsluáætlunum
Hugsar þú fram í tímann?
Við hjá Landsvirkjun leitum að öflugum liðsfélaga í teymi vinnsluáætlana. Teymið ber ábyrgð á skipulagi raforkuvinnslu með hámörkun á nýtingu innviða og auðlinda að leiðarljósi, ásamt mati og greiningu á framboðsgetu fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á greiningarvinnu, líkönum og orkumálum og vill vinna að spennandi verkefnum í faglegu og hvetjandi starfsumhverfi.
Helstu verkefni:
- Rekstur og þróun á bestunarlíkani Landsvirkjunar fyrir raforkuvinnslu
- Greiningar og áætlanagerð fyrir vinnslukerfi Landsvirkjunar
- Mat og eftirlit með framboðsgetu vinnslukerfisins
- Umsjón með orkuvinnslugögnum
Við leitum að einstaklingi sem:
- hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði, stærðfræði eða á tengdum sviðum
- hefur reynslu af greiningarvinnu og framsetningu gagna
- hefur reynslu af notkun eða þróun líkana
- býr yfir drifkrafti, frumkvæði og skipulagi og nýtur þess að hrinda verkum í framkvæmd
- býr að sjálfstæði í störfum og jákvæðni í samskiptum
Advertisement published31. August 2026
Application deadline10. September 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Financial planningProactiveData analysisPositivityHuman relationsPlanning
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (11)

Hönnun umferðarmannvirkja
EFLA hf

Verkfræðingur í vöruþróun
Kerecis

Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Úrvinnslusjóður

Viðskiptastjóri verklegra framkvæmda
HS Orka

Gæða- og öryggisstjóri
Terra hf.

Yfirverkefnastjóri auðlinda
HS Orka

Deildarstjóri Verkefnastofu
Norðurorka hf.

Viltu taka þátt í að móta framtíð jarðhitans?
Eldar Power

Commissioning and Qualification Specialist
Alvotech hf

Research and Development Engineer
HYDRAM rannsóknir ehf.

Verk- og tæknifræðingar
Verkfræðistofa Suðurnesja