
Vistor
Sérfræðingur í viðskiptaþróunar- og greiningardeild
Ertu talnaglögg/ur með brennandi áhuga á greiningum?
Vistor leitar að metnaðarfullum sérfræðingi í viðskiptaþróun og greiningum sem vill taka virkan þátt í að móta framtíð lyfjamarkaðarins á Íslandi. Starfið einkennist af frumkvæði, sjálfstæði og tækifærum til að hafa áhrif, bæði innan fyrirtækisins og fyrir samfélagið í heild.
Viðkomandi starfar í nánu samstarfi við markaðsstjóra og sérfræðinga í teymi viðskiptaþróunar og greiningar, þar sem greiningar, gögn og innsýn eru nýtt til að taka upplýstar og framsæknar ákvarðanir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greining á markaði, tækifærum og þróun lyfja
- Áætlanagerð og eftirfylgni með markmiðum og áætlunum
- Kostnaðar- og ábatagreiningar á lyfjameðferðum
- Verðútreikningar og vinna við umsóknir um greiðsluþátttöku
- Samskipti við opinbera aðila og birgja
- Öflun, úrvinnsla og skýr framsetning gagna til ákvarðanatöku
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. menntun í viðskipta- eða verkfræði, heilsuhagfræði og/eða heilbrigðisvísindum
- Framúrskarandi hæfni í greiningum, gagnavinnslu og skýrslugerð(Excel og Power BI eru skilyrði)
- Áhugi og drifkraftur til að nýta gervigreind, sjálfvirknivæðingu og stafræna gagnavinnslu til að skapa ný tækifæri og styrkja ákvarðanatöku.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, sterk samskiptafærni og hæfni til að vinna þvert á teymi og fagaðila
- Þekking á lyfjamarkaði og íslensku heilbrigðiskerfi er kostur
Fríðindi í starfi
- Hollur og góður morgun- og hádegisverður
- Aðgangur að sund- og líkamsræktarstöð
- Niðurgreiðsla á sálfræðiþjónustu
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
Advertisement published14. January 2026
Application deadline25. January 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
Microsoft ExcelPower BI
Professions
Job Tags


