

Sérfræðingur í veituhönnun
Starfstöð COWI á Akureyri, Tryggvabraut 10.
Vilt þú verða hluti af alþjóðlegu fyrirtæki og takast á við áhugaverð verkefni? Hefur þú áhuga á hönnun veitulagna í nærumhverfi fyrir opinbera- og einkaaðila? Langar þig að þróast í starfi innan fjölbreytts hóps sérfræðinga hérlendis og erlendis? Þá hvetjum við þig til að kynna þér starfið betur hér að neðan.
COWI á Íslandi leitar að sérfræðingi í veituhönnun. Með nýrri aðstöðu og góðri verkefnastöðu skapast aukið rými til vaxtar á starfsstöðinni á Akureyri og því erum við að leitast eftir reyndum hönnuði til að ganga til liðs við okkur í deild samganga og veitna. Á starfsstöðinni á Akureyri eru 8 starfsmenn en 20 sérfræðingar starfa á deild samganga og veitna sem fást við fjölbreytt verkefni sem snúa að framkvæmdaeftirliti og mælingum, veituhönnun, samgöngutækni og útboðum á verklegum framkvæmdum.
Lykilþættir starfsins eru:
- Hönnun fráveitu, vatnsveitu og hitaveita í þéttbýli og dreifbýli.
- Gerð verklýsinga og magnskráa.
- Gerð kostnaðaráætlana.
- Gerð efnislista.
- Samskipti við viðskiptavini.
Til að ná árangri í þessari stöðu teljum við að þú ættir að vera þjónustusinnaður, sveigjanlegur einstaklingur sem er frábær í að byggja upp sambönd, gefa gaum að smáatriðum og alltaf opinn fyrir nýjum áskorunum.
Að auki erum við að leitast eftir:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. verk- eða tæknifræði.
- Reynslu af hönnun veitna.
- Reynslu af hönnun í Civil 3D.
- Jákvæðu viðhorf og frumkvæði í starfi.
- Góðum samskiptahæfileikum.
- Nákvæmi og sjálfstæðum vinnubrögð.
- Íslenskukunnáttu í tali og rituðu máli.
Við bjóðum líka uppá
- Nýtt og glæsilegt skrifstofuhúsnæði.
- Sveigjanlegan vinnutíma og fjarvinnumöguleika í bland við vinnu á starfsstöð.
- Samgöngu- og líkamsræktarstyrk.
- Starfsmannafélag með fjölbreyttum nefndum og viðburðum.
- Viðbótargreiðslur í fæðingarorlofi.
- Starfsþróunarmöguleika innan COWI og rafræna þjálfun hjá COWI Academy.
- Árlegt heilsufarsmat.
English
Icelandic










