

Sérfræðingur í þróun gagnavöruhúss
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling til að taka þátt í uppbyggingu nýs gagnavöruhúss sem byggir á Data Vault aðferðafræðinni.
Starfið er innan deildar þróunar og gagnahögunar á sviði upplýsingatækni sem ber ábyrgð á þróun og rekstri tölvukerfa og gagnaumhverfis bankans. Þar starfar öflugt teymi sérfræðinga í hugbúnaðarþróun, gagnasamþættingu og DevOps. Áhersla er lögð á stöðugar umbætur, trausta og nútímalega gagnainnviði og gott samstarf við hagaðila.
Verið er að þróa nýtt gagnavöruhús sem mun sameina gögn úr lykilkerfum bankans og leysa eldri lausnir af hólmi. Viðkomandi tekur þátt í hönnun og þróun gagnainnviða sem styðja við greiningar og upplýsta ákvarðanatöku.
Mikilvægast er að viðkomandi hafi góðan tæknilegan grunn, áhuga á gagnavinnslu og innviðum ásamt vilja til að læra og þróast í starfi.
- Hönnun og þróun gagnavöruhúss
- Þróun gagnaflæðis og gagnasamþætting
- Gagnalíkanagerð og uppbygging gagnaferla
- Tryggja gæði og áreiðanleika gagna
- Samstarf við greiningar- og þróunarteymi
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla á SQL og gagnagrunnum
- Þekking og reynsla af ETL/ELT eða annarri gagnavinnslu
- Reynsla eða þekking á Data Vault gagnavöruhúsum er kostur
- Forritunarkunnaátta sem nýtist í starfi t.d. C# eða Python er kostur
- Áræðni, heiðarleika og metnað til að ná árangri í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
- Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Icelandic

