Coripharma ehf.
Coripharma ehf.
Coripharma ehf.

Sérfræðingur í þróun á mæliaðferðum

Coripharma óskar eftir öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa á Þróunardeild mæliaðferða. Deildin er hluti af Þróunarsviði Coripharma og sér um að þróa og gilda mæliaðferðir fyrir bæði hráefni og framleiðsluvörur. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, m.a. á rannsóknarstofu þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, nákvæmni og skil á niðurstöðum innan tilgreindra tímalína. Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vinna í samhentu teymi sérfræðinga og leggur sitt af mörkum til jákvæðrar og uppbyggilegrar starfsmenningar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þróun mæliaðferða og þátttaka í þróunarferli nýrra samheitalyfja
  • Gilding mæliaðferða, t.d. á HPLC, fyrir hráefni og framleiðsluvörur
  • Útreikningar, frágangur rannsóknarniðurstaðna og skýrslugerð
  • Almenn rannsóknarstofustörf og þátttaka í umbótastarfi tengt gæðakerfi og tækjamálum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • M.Sc. í raunvísindum, sem nýtist í starfi
  • Reynsla af HPLC og/eða öðrum mæliaðferðum er kostur
  • Reynsla af þróunarvinnu og GMP gæðakerfum er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og geta til að tileinka sér nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta ásamt góðri kunnáttu í íslensku og ensku

Við bjóðum

  • Fjölbreytt og áhugavert starf í alþjóðlegu og vaxandi lyfjafyrirtæki
  • Tækifæri til að læra og þróast í öflugu rannsóknarumhverfi
  • Samheldinn og faglegan vinnustað þar sem gæði, öryggi og samvinna eru í fyrirrúmi
  • Sveigjanlegan vinnutíma
  • Niðurgreiddan hádegismat

Coripharma er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með um 230 starfsmenn sem byggir á traustum grunni lyfjaþróunar og framleiðslu á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.

Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst næstkomandi.

Advertisement published28. July 2026
Application deadline16. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Reykjavíkurvegur 76, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PharmacistPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.ResearchPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Report writing
Professions
Job Tags