
Sérfræðingur í gagnahögun
Sérfræðingur í gagnahögun óskast í fjölbreytt og spennandi verkefni hjá gagnaþjónustu þjónustu- og nýsköpunarsviðs m.a. til að útfæra og taka þátt í uppbyggingu heildræns gagnalandslags fyrir borgina. Sérfræðingur í gagnahögun sér um hönnun-, þróun- og umbætur á gagnaferlum, þróun og hönnun á gagnaviðmótum (Data APIs), smíði sjálfvirkra/tímasettra gagnapípa (CI/CD pípur), vinnur með gögn í blönduðu umhverfi skýjaumhverfi og on prem, veitir gagnahögunarráðgjöf og tekur þátt í hugbúnaðarþróunarverkefnum með uppsetningu og högun gagnagrunna. Sérfræðingur í gagnahögun sér um þróun og smíði gagnavinnsluferla í vöruhúsi gagna / gagnalóns (e. data lake) og stuðningur við þróun samþættingarferla. Einnig aðstoðar hann við að útbúa gögn til frekari notkunar ásamt því að gera þau aðgengileg í gegnum gagnaforritaskil (e. data API). Með því að gera gögn úr ólíkum kerfum aðgengileg, gæðastýrð og uppbyggð á einum stað styður sérfræðingur í gagnahögun við gagnadrifna ákvörðunartöku innan borgarkerfisins.
Sem sérfræðingur í gagnahögun munt þú ...
- Aðstoða við að framfylgja stefnu borgarinnar varðandi gagnagæði og gagnahögun.
- Styðja við gagnadrifinn rekstur í stafrænni vegferð
- Hanna, þróa og gera umbætur á gagnavinnsluferlum
- Forrita og viðhalda gagnavinnsluferlum
- Þróa og hanna gagnaviðmót og ferla
- Smíða sjálfvirkar / tímasettar gagnapípur (CI/CD)
- Vinna með gögn í blönduðu skýjaumhverfi og on prem
- þróa og hanna gagnaviðmót (Data APIs),
- Veita ráðgjöf og rýna hönnun gagnagrunna
- Taka þátt í samstarfshópum
- Taka þátt í hugbúnaðarþróunarverkefnum
- Vinna önnur þau verkefni sem yfirmaður felur sérfræðingi í gagnahögun
Hæfni og reynsla sem krafist er:
- Marktæk reynsla af starfi við t.d. hugbúnaðarverkfræði (e.software engineering) mikill kostur
- Góð kunnátta í SQL , R, Python og/eða öðrum gagnaforritunarmálum
- Reynsla af smíði sjálfvirkra/tímasettra gagnapípa (CI/CD pípur)
- Þekking og reynsla af smíði gagnaviðmóta og gagnapípa (data -APls, Apache, Airflow, dbt kostur)
- Þekking og reynsla af vinnslu gagna í skýjaumhverfi (reynsla af Azure umhverfinu kostur)
- Reynsla af vinnslu gagna í gagnagrunnsumhverfi og gagnahögun
- Góð kunnátta í gagnaforritun
- Þekking og reynsla af vinnslu gagna í skýjaumhverfi
- Yfirgripsmikil tölvu- og tækniþekking
- Geta til að miðla upplýsingum og þekkingu til annarra
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Rík aðlögunarhæfni og lausnamiðuð hugsun
- Útsjónarsemi og skipulagskunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
- Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika
Menntun sem krafist er:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi auk mikillar starfsreynslu á viðkomandi sviði
- Framhaldsmenntun á háskólastigi kostur
Við bjóðum upp á
- Fyrsta flokks vinnustað
- Niðurgreitt mötuneyti sem býður upp á fjölbreyttan og hollan mat
- Verkefni sem stuðla að því að einfalda og bæta líf starfsfólks og borgarbúa
- Krefjandi og skemmtileg verkefni
- Öfluga nýliðamóttöku
- Sálrænt öryggi og skapandi menningu
- Góða liðsheild og góð samskipti
- Samkennd og virðing
- Þekkingarumhverfi
- Fjölbreytta þjálfun og möguleika á þróun í starfi
- Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
- Heilsueflandi vinnustað
- Gott vinnuumhverfi
- 30 daga í sumarleyfi
- 36 stunda vinnuviku
- Fyrsta flokks vinnuaðstöðu
- Heilsu- og samgöngustyrk
- Sundkort
- Menningakort