50skills
50skills

Sérfræðingur í fjármálum

Við leitum að sérfræðingi til að sinna daglegum fjármálarekstri 50skills og taka þátt í að bæta kerfi og verkferla hjá vaxandi tæknifyrirtæki. Þú hefur umsjón með reikningagerð, greiðslum, áætlanagerð og uppgjörum og vinnur náið með fjármála- og rekstrarstjóra. Starfið hentar þeim sem vinna sjálfstætt og af nákvæmni, sýna góða dómgreind og hafa áhuga á að finna betri leiðir til að leysa verkefnin.

50skills þróar hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og opinberum stofnunum að sjálfvirknivæða ferla í mannauðsmálum. Við erum í örum vexti á Íslandi og erlendis og leitum að einstaklingi sem vill hjálpa til við að tryggja að fjármálakerfi séu skýr og skilvirk, og styðji við vöxt fyrirtækisins.

Verkefnin þín

Daglegur fjármálarekstur

  • Umsjón með reikningagerð til viðskiptavina, innheimtu og fjárhagsupplýsingum viðskiptavina.
  • Móttaka og yfirferð birgjareikninga, eftirfylgni með samþykktum og greiðsla reikninga á réttum tíma.
  • Umsjón með fjárhagskerfi og bókhaldi í samstarfi við utanaðkomandi bókara félagsins.
  • Launavinnsla í samstarfi við stjórnendur.

Áætlanagerð, uppgjör og lögbundin skil

  • Taka þátt í að byggja upp fjárhagsáætlunarferli með fjármála- og rekstrarstjóra og hafa umsjón með framkvæmd þess.
  • Hafa umsjón með reglulegum uppgjörum í samstarfi við bókhald.
  • Sinna skattatengdum verkefnum og tryggja að lögbundin skil séu rétt og á réttum tíma, í samstarfi við bókara og ráðgjafa eftir þörfum.
  • Samræma undirbúning ársreiknings og endurskoðunar, þar á meðal gagnaöflun og eftirfylgni með bókara og endurskoðendum.


Kerfi og umbætur

  • Koma auga á tækifæri til að bæta fjármálakerfi, verkferla og gæði fjármálaupplýsinga.
  • Nýta sjálfvirknivæðingu og gervigreind þar sem það getur dregið úr handavinnu og aukið áreiðanleika.
  • Innleiða minni háttar umbætur í daglegri vinnu eftir því sem þú kynnist starfinu og kerfunum.

Svona er starfið

Þú vinnur náið með fjármála- og rekstrarstjóra, sem starfið heyrir undir, ásamt bókara félagsins og öðrum stjórnendum. Áherslan er á að daglegur fjármálarekstur gangi vel: reikningar til viðskiptavina séu réttir, samþykktum birgjareikninga sé fylgt eftir, greiðslur og lögbundin skil séu á réttum tíma og fjármálaupplýsingar séu áreiðanlegar.Starfið sameinar reglubundin verkefni og viðfangsefni sem krefjast athugunar, dómgreindar og eftirfylgni. Þú átt auðvelt með að leysa úr misræmi, fylgja málum eftir með samstarfsfólki og tryggja að óloknum málum sé komið í höfn. Samhliða vexti fyrirtækisins tekur þú einnig þátt í að byggja upp skipulegri vinnubrögð, meðal annars við fjárhagsáætlanagerð.

Hver þú ert

  • Þú hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þú hefur reynslu af fjármálaumsýslu og bókhaldi og góðan skilning á rekstri fyrirtækja.
  • Þú hefur þekkingu á áætlanagerð, uppgjörum og skattatengdum skilum.
  • Þú getur unnið sjálfstætt, forgangsraðað verkefnum og staðist tímamörk.
  • Þú vinnur af nákvæmni, sýnir góða dómgreind og gætir trúnaðar.
  • Þú hefur góða greiningarhæfni og getur komið fjármálaupplýsingum skýrt til skila.
  • Þú hefur gott vald á töflureiknum, átt auðvelt með að tileinka þér ný kerfi og hefur áhuga á að nýta sjálfvirknivæðingu og gervigreind í starfi.
  • Þú sýnir frumkvæði, hefur áhuga á stöðugum umbótum og átt gott samstarf við aðra.
  • Þú hefur gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti.

Það sem starfið býður

  • Fjölbreytt starf með skýra ábyrgð á mikilvægum fjármálaverkefnum.
  • Tækifæri til að nýta reynslu þína og hugmyndir við þróun fjármálareksturs hjá vaxandi tæknifyrirtæki.
  • Náið samstarf við stjórnendur og góða innsýn í rekstur og ákvarðanatöku félagsins.
  • Nútímalegt og tæknilegt vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á að nýta tækni til að draga úr handavinnu og auka gæði.
  • Góða starfsaðstöðu í Hlíðasmára í Kópavogi og aðgang að mötuneyti á staðnum.
Advertisement published14. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hlíðasmári 3, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags