

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT ehf.
ECIT á Íslandi er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði bókhalds- og launavinnslu með um 110 sérfræðinga sem hafa aðsetur á 15 stöðum um land allt.
ECIT á Íslandi rekur tvö félög sem eru ECIT Bókað ehf. og ECIT Virtus ehf.
Við leitum nú að öflugum einstaklingum með reynslu og þekkingu í bókhaldi til starfa. Við leitum að sérfræðingum í fullt starf og kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Starfsfólk okkar þarf almennt að geta tekið frumkvæði og unnið sjálfstætt, vera lausnamiðað, þjónustulundað og eiga auðvelt með samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini félagsins.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.
Færsla og afstemming bókhalds fyrir viðskiptavini ECIT á Íslandi.
Skil í uppgjör og skil á virðisaukaskatti
Upplýsingagjöf og almenn ráðgjöf til viðskiptavina.
Önnur tilfallandi verkefni
Krafa um góða þekkingu og reynslu af bókhaldsstörfum
Viðskiptamenntun æskileg og/eða nám til viðurkennds bókara.
Þekking og reynsla af bókhaldskerfum
Enskukunnátta æskileg
Talnagleggni og tölvufærni
Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
Rík þjónustulund og jákvæðni
Icelandic
English










