
Sérfræðingur BSRB í stefnumótun og greiningu
BSRB leitar að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi á sviði greininga og stefnumótunar til að taka þátt í spennandi og krefjandi verkefnum á skrifstofu heildarsamtakanna. Um er að ræða nýja stöðu á skrifstofu BSRB.
Viðkomandi tekur þátt í og ber ábyrgð á greiningum á opinberri þjónustu, opinberum fjármálum og starfskjörum starfsfólks í almannaþjónustu. Sérfræðingur BSRB í stefnumótun og greiningum safnar saman og tryggir gott aðgengi að upplýsingum um vinnumarkaðinn og byggir þannig undir stefnumótun heildarsamtakanna.
Um er að ræða tækifæri til að móta stefnu og verklag innan stærstu samtaka opinberra starfsmanna á Íslandi. Verkefnin eru á fjölbreyttu sviði samkvæmt stefnu BSRB t.d. efnahags-, skatta-, kjara-, heilbrigðis-, lífeyris- og húsnæðismál. Viðkomandi vinnur náið með hagfræðingi BSRB og öðru starfsfólki bandalagsins.
- Greining á opinberri þjónustu, útvistun verkefna og opinberum fjármálum
- Stefnumótun í samvinnu við formannaráð og stjórn BSRB auk annarra sérfræðinga bandalagsins
- Samskipti við stjórnvöld og aðila vinnumarkaðarins í samráði við formann og framkvæmdastjóra
- Seta í ýmsum nefndum og ráðum samkvæmt ákvörðun stjórnar BSRB
- Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun er æskileg
- Reynsla af greiningum og stefnumótun
- Hæfni og reynsla í framsetningu tölulegra og skriflegra gagna
- Rík samskiptafærni, skipulagshæfileikar og gagnrýnin hugsun
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
English
Icelandic






