
Sensa ehf.
Sensa er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki og starfar þar reynslumikill hópur sérfræðinga með hátt þekkingarstig. Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins eftir bestu getu.
Markmið Sensa er að vera ávallt í fararbroddi þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Áhersla er lögð á að starfsfólk styrki sig í þekkingu og menntun með ýmsu móti og geti vaxið á eigin forsendum. Okkur er ekki sama eru einkunnarorð Sensa, okkur er ekki sama um viðskiptavininn eða starfsmenn okkar.
Eigandi Sensa er SoftwareOne sem er alþjóðlegt upplýsingatæknifyrirtæki með höfuðstöðvar í Swiss.

Sérfræðingur á mannauðssviði
Sensa leitar að reynslumiklum og öflugum mannauðsráðgjafa sem vill hafa áhrif, taka ábyrgð og hjálpa okkur að byggja upp enn betri vinnustað.
Við leitum að einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum, hefur sterka faglega dómgreind og getur stutt stjórnendur og starfsfólk af öryggi í daglegum mannauðsmálum.
Sensa er alþjóðlegt 120 manna þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í upplýsingatækni á fyrirtækjamarkaði.
Við erum öflugt teymi sérfræðinga sem styðjum hvert annað og vinnum saman. Við leggjum mikla áherslu á góðan starfsanda, sveigjanleika og að starfsfólk hafi svigrúm til að þróast í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með ráðningum og móttöku nýs starfsfólks
- Túlkun og eftirfylgni með kjarasamningum, vinnulöggjöf og réttindum starfsfólks
- Þátttaka í þróun og umbótum á mannauðsferlum og starfsumhverfi
- Stuðningur við frammistöðu-, þróunar- og fræðslumál
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur í mannauðsmálum
- Úrvinnsla og eftirfylgni ýmissa starfsmannamála
- Þátttaka í verkefnum sem styðja við menningu, vellíðan og árangur starfsfólks
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla á sviði mannauðsmála
- Góð þekking á vinnurétti, kjarasamningum og réttindum starfsfólks
- Sjálfstæði, frumkvæði og fagleg dómgreind
- Drifkraftur, skipulagshæfni og geta til að ljúka verkefnum
- Framúrskarandi samskiptafærni og sterk þjónustulund
- Fagmennska, sterk ábyrgðarkennd og trúnaður í starfi
- Reynsla af launavinnslu er kostur, en ekki skilyrði
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Advertisement published18. June 2026
Application deadline28. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
DriveProactiveClean criminal recordPositivityHuman resourcesHuman relationsHiringConscientiousIndependencePlanningMeticulousness
Work environment
Professions
Job Tags


