
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Við rekum fimmtán heilsugæslustöðvar í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, þar sem við veitum samræmda þjónustu.
Einnig sjáum við um sérþjónustustöðvarnar: Heimahjúkrun í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi, Geðheilsumiðstöð barna, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsuteymi HH austur, Geðheilsuteymi HH vestur, Geðheilsuteymi HH suður, Geðheilsuteymi Taugaþroskaraskanna, Geðheilsuteymi fangelsa, Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna, Samhæfingastöð krabbameinsskimanna, Upplýsingamiðstöð, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu auk stoðþjónustu á skrifstofu.
Heilsuvera er samstarfsverkefni okkar og Embættis landlæknis. Þar er hægt að hafa samskipti við starfsfólk heilsugæslustöðvanna og fræðast um heilsu og áhrifaþætti hennar.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur á að skipa sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem vinnur í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði þeirra fær að njóta sín.
Starfsfólk heilsugæslunnar vinnur að því að veita íbúum höfuðborgarsvæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan byggir á sérþekkingu og víðtæku þverfaglegu samstarfi.

Sérfræðingur á fjármálasviði
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum sérfræðingi til liðs við deild reikningshalds og fjárreiðna. Hjá okkur starfar öflugur hópur sem vinnur saman að því að styðja við öfluga heilbrigðisþjónustu með faglegri fjármálastjórnun. Sviðið er staðsett í Álfabakka 16.
Í teyminu er lögð áhersla á samstarf, traust og góðan starfsanda.
Frekari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds og skráning í bókhaldskerfi ríkisins
- Afstemmingar, frágangur og skil á virðisaukaskatti
- Greiningarvinna og úrvinnsla gagna
- Samskipti við Fjársýslu ríkisins, lánadrottna og innri aðila
- Þátttaka í umbótaverkefnum og rafrænum ferlum
- Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt beiðni deildarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- BSc í viðskiptafræði eða sambærilega menntun er skilyrði
- Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði
- Góð almenn tölvufærni, talnagleggni og góð þekking í Excel
- Þekking og reynsla af Orra bókhaldskerfi er kostur
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
Samgöngustyrkur
Heilsustyrkur
Advertisement published19. June 2026
Application deadline6. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
ReconciliationPositivityMicrosoft ExcelConscientiousIndependencePlanningBusiness administratorCustomer service
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (8)

Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Fjörður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heimahjúkrun HH - Almennur starfsmaður
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Læknar óskast í spennandi uppbyggingu teymismiðaðar heilsugæslu
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingar óskast til HH - starfsþróunarár í boði
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Árbæ
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Móttökuritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í fjármálum fyrirtækja
KPMG á Íslandi

Sérfræðingur í orkumiðlun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í viðskiptaþróun
Landsnet

Sérfræðingur í viðskiptagreiningum
Landsnet

Ráðgjafi í fyrirtækjaráðgjöf
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Bókari
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Sérfræðingur
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Verkefnastjóri
LOGOS Endurskoðun & Ráðgjöf

Vilt þú taka þátt í að efla stöðu fyrirtækja á sviði verslunar og þjónustu?
Samtök Verslunar og þjónustu

Sérfræðingur í birgðastýringu og bakvinnslu
Öryggismiðstöðin

Tæknilegur aðalbókari á Húsavík
Sessor

Sérfræðingur aðfangastýringar
Norðurál