Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.
Sérfræðingar í fósturteymi
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar tvær 100% stöður sérfræðings í fósturteymi stofnunarinnar. Störfin heyra undir framkvæmdastjóra meðferðarsviðs. Starfsstöð er í Borgartúni 29, 105 Reykjavík en starfið krefst þess að viðkomandi geti ferðast um landið vegna starfa sinna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fræðsla og faglegur stuðningur við fósturforeldra.
- Gerð umsagna um mat á hæfni fósturforeldra.
- Halda skrá um fósturforeldra og fósturbörn.
- Afgreiðsla, mat og úrvinnsla umsókna frá barnaverndarþjónustum um fóstur.
- Ráðgjöf, handleiðsla og leiðbeiningar í einstaka málum til barnaverndar, annarra fagaðila og fósturforeldra.
- Halda utan um fósturforeldranámskeið og sinna endurmenntun fósturforeldra.
- Þátttaka í faglegri þróun fósturmála er falla innan verkefna Barna- og fjölskyldustofu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsleyfi sem sálfræðingur eða félagsráðgjafi.
- Þekking og hæfni til að meta upplýsingar um umönnunar- og meðferðarþörf barna.
- Reynsla og þekking á starfi barnaverndar og af fósturmálum kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt skipulagshæfni.
- Sveigjanleiki og þjónustulund ásamt færni til að vinna í teymi.
- Mjög góð íslenskukunnáttu og góð enskukunnátta í rituðu og töluðu máli, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Fríðindi í starfi
- 36 klst. vinnuvika
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
Advertisement published13. September 2024
Application deadline27. September 2024
Language skills
IcelandicVery good
Location
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (10)
Sálfræðingur óskast
Vestmannaeyjabær
Sálfræðingur Píeta samtökin
Píeta Samtökin
FÉLAGSRÁÐGJAFI
Dalvíkurbyggð
Sálfræðingur barna og unglinga - Heilsugæslan Hlíðum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Sálfræðingur í deild barna og fjölskyldna í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Félagsráðgjafi í barnaverndarþjónustu
Garðabær
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Sólvangi
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Starfsmaður í sérkennslu
Lækur
Atvinnuráðgjafi í Hinu Húsinu
Hitt húsið
Klínískur sálfræðingur
Líf og sál