

Sálfræðingur fullorðinna - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæslan Efstaleiti leitar að jákvæðum og metnaðarfullum sálfræðingi í 50% ótímbundið starf. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf á spennandi vettvangi, fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á að taka þátt í framþróun í geðheilsumálum innan heilsugæslu og vill stuðla að heilbrigði einstaklinga.
Um er að ræða 50% ótímabundið starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. nóvember nk. eða eftir nánari samkomulagi.
Á Heilsugæslunni Efstaleiti starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Lögð er áhersla á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.
Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni sálfræðing í ábyrgðarminna starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
-
Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
-
Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
-
Einstaklings- og hópmeðferð
-
Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
-
Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg
-
Virk þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
-
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
-
Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
-
Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
-
Starfsleyfi útgefið af embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
-
3 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
-
Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum
-
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
-
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
-
Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
-
Reynsla af starfi með túlki
-
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
-
Góð íslenskukunnátta skilyrði
-
Góð enskukunnátta æskileg
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Icelandic
English












