Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sálfræðingur - FLIKK ForeldraLausn og Internetmeðferð fyrir Kvíðna Krakka

Viltu vera hluti af nýstárlegu samstarfi sem mótar framtíð geðheilbrigðismála á Íslandi?

Heilsubrú leitar að metnaðarfullum og jákvæðum sálfræðingi til að taka þátt í uppbyggingu og innleiðingu á fyrstu stafrænu lausninni fyrir börn með kvíðavanda á Íslandi. Þetta er einstakt tækifæri fyrir sálfræðing sem vill vinna á spennandi vettvangi þar sem klínísk vinna og nýsköpun mætast.

FLIKK er þróað í öflugu alþjóðlegu samstarfi Háskólans í Reykjavík, tæknifyrirtækisins Bitjam og Háskólans í Oxford og stendur fyrir ForeldraLausn og Internet meðferð fyrir Kvíðna Krakka og er fyrir börn á aldrinum 5-12 ára. Markmið FLIKK er að kenna foreldrum aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar til að hjálpa börnum sínum að ná tökum á kvíðavanda og auka aðgengi að árangursríkri meðferð.

Starfið er innan Heilsubrúar og unnið í nánu samstarfi við rannsóknarteymi FLIKK við Háskólann í Reykjavík, sem leiðir þróun verkefnisins á Íslandi. Staðsetning starfsins er því innan Heilsubrúar með reglulegri viðveru í Háskólanum í Reykjavík.

Heilsubrú er miðlæg eining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem hefur það markmið að efla og samræma þverfaglega þjónustu innan heilsugæslunnar. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)


Um er að ræða 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita gagnreynda meðferð í gegnum FLIKK.
  • Þróun og endurmat á verklagi, fræðslu- og meðferðarefni FLIKK.
  • Þátttaka í klínískum umbótum og innleiðingarvinnu stafrænnar meðferðar.
  • Eftirfylgni og mat á árangri FLIKK í samvinnu við rannsóknarteymi Háskólans í Reykjavík.
  • Taka þátt í að kenna, miðla og styðja starfsfólk í notkun nýrra meðferðarleiða með sérstakri áherslu á stafrænar lausnir.
  • Útbúa fræðsluefni ,leiðbeiningar og þjálfun fyrir heilbrigðisstarfsfólk í notkun FLIKK
  • Vera tengiliður í útbreiðslu FLIKK og annarra úrræða innan heilsugæslunnar.
  • Þátttaka í framþróun FLIKK í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Bitjam og Háskólann í Oxford.
  • Þátttaka í framþróun og innleiðingu annarra meðferðarúrræða innan Heilsubrúar með áherslu á stafrænar lausnir.
  • Þverfaglegt samstarf við aðra fagaðila. 
  • Önnur verkefni sem upp gætu komið upp.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem sálfræðingur
  • 5 ára starfsreynsla sem sálfræðingur  
  • Reynsla af vinnu með börnum og ungmennum kostur
  • Reynsla af handleiðslu kostur
  • Þekking á gagnreyndum meðferðum 
  • Þekking og reynsla af HAM
  • Reynsla af rannsóknarvinnu kostur
  • Áhugi eða reynsla af stafrænum heilbrigðislausnum og þróunarvinnu
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki 
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • Góð enskukunnátta
  • Góð almenn tölvukunnátta 
Advertisement published4. March 2026
Application deadline18. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Þönglabakki 1, 109 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PsychologistPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags