atNorth
atNorth

Rafvirki / Rafmagnssérfræðingur

atNorth heldur áfram að stækka starfsemi sína á Akureyri og leitar að kraftmiklum reynslubolta í starf í rafvirkja/rafmagnssérfræðings.

Við kunnum að meta góða liðsfélaga sem eru áhugasamir um að læra og vaxa í heimi gagnavera og gervigreindar.

Áreiðanleg rafkerfi eru mikilvægur hlekkur í starfsemi gagnavera okkar og mikilvægt að uppsetning þeirra, viðhald og rekstur séu með skilvirkum og öruggum hætti.

Sem rafvirki hjá atNorth verður þú hluti af öflugu teymi sem sér um rekstur og viðhald á tæknilega krefjandi innviðum gagnaversins.

Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni þar sem öryggi, gæði og áreiðanleiki eru í forgrunni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinna almennu viðhaldi, breytingum og uppsetningu á búnaði og kerfum í gagnaverinu
  • Annast uppsetningu, eftirlit og viðhald á rafbúnaði og öðrum tæknikerfum
  • Framkvæma skipulagt fyrirbyggjandi viðhald og reglubundið eftirlit samkvæmt verklagsreglum og viðhaldsáætlunum
  • Taka þátt í greiningu, bilanaleit og viðgerðum á rafmagns- og stoðkerfum gagnaversins
  • Styðja við framkvæmdir, breytingaverkefni og daglegan rekstur með tæknilegri sérfræðiþekkingu
  • Taka virkan þátt í þróun og endurbótum á verkferlum, vinnulagi og öryggisstöðlum
  • Veita viðskiptavinum faglega þjónustu og vinna úr beiðnum með skilvirkum hætti
  • Styðja við gangsetningu nýrra kerfa og búnaðar
  • Sinna öðrum verkefnum í samráði við stjórnendur og samstarfsfól
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í rafvirkjun eða sambærileg menntun á raf- og tæknisviði
  • Viðbótarmenntun eða sérhæfing á tæknisviði er kostur
  • Þekking og reynsla af lágspennukerfum
  • Góð þekking á virkni rafkerfa, stjórnkerfa og tengdum tæknibúnaði
  • Reynsla af rekstri, viðhaldi eða bilanagreiningu tæknikerfa er kostur
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna náið með samstarfsfólki, verktökum og viðskiptavinum
  • Sjálfstæð, skipulögð og fagleg vinnubrögð ásamt frumkvæði og lausnamiðaðri hugsun
  • Jákvætt umbótahugarfar, rík öryggisvitund og sterk þjónustulund
  • Góð færni í ensku, bæði töluðu og rituðu máli
  • Hreint sakavottorð
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru
  • Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Advertisement published14. July 2026
Application deadline15. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Rangárvellir 150130, 603 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ElectricianPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags