
RæstiTækni
RæstiTækni hefur starfað frá árinu 2002 og felst meginstarfsemi fyrirtækisins í þjónustu við fyrirtæki, stofnanir og húsfélög. Við sjáum um ýmis sérverkefni eins og hreingerningar, þrif eftir framkvæmdir, bón á gólfdúkum, teppahreinsun. Ræstitækni rekur einnig stóra gluggaþvotta deild og á þrjá körfubíla til að auðvelda verkið.
Ræstitækni leggur metnað sinn í að bjóða upp á vandaða þjónustu á sem flestum sviðum og sér um heildarumsjón með ræstingu.

Ræstitækni leitar að öflugum viðskiptastjóra til starfa á sölu-og markaðssviði fyrirtækisins
Þú munt byggja upp og þróa ný viðskiptasambönd og tryggja að sölumál fyrirtækisins séu í fremstu röð. Þú verður andlit Ræstitækni gagnvart nýjum viðskiptavinum.
Ef að þú ert sjálfstæð/ur, söludrifinn einstaklingur sem hefur reynslu af sölu til fyrirtækja og býrð yfir færni í mannlegum samskiptum, þá viljum við endilega heyra frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kynna og selja ræstingaþjónustu og fl. til fyrirtækja.
- Kortleggja markaðstækifæri og finna nýja viðskiptavini.
- Byggja upp viðskiptasambönd.
- Umsjón með samningagerð.
- Teymisvinna.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölustörfum
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar
- Drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
- Mjög góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
Góð laun, árangurstengdir bónusar, unnið til hádegis á föstudögum, ýmis námskeið og fl. - Hentar vel fyrir barnafólk þ.e. sveigjanleiki í boði hvað varðar morgnanna eða seinnipartinn varðandi að skutla og sækja, læknisheimsóknir og þess háttar.
Advertisement published25. September 2025
Application deadline12. October 2025
Language skills

Required

Required
Location
Nýbýlavegur 32, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
Sales
Work environment
Professions
Job Tags