

Ræstingastjóri fiskvinnslu á Djúpavogi
Hefur þú ástríðu fyrir því að halda umhverfinu þínu hreinu og skipulögðu?
Kaldvík leitar að við leitum að duglegum, samviskusömum og jákvæðum liðsauka í hlutverk Ræstingastjóra til að leiða og skipuleggja ræstingarstarfsemi fyrirtækisins. Starfið er mikilvægt í vaxandi matvælafyrirtæki sem leggur áherslu á hreinlæti og gæði.
Í þessu hlutverki munt þú bera ábyrgð á:
- Að stjórna og skipuleggja þrif í samráði við verk- og gæðaeftirlitsstjóra
- Tryggja að þrif í húsnæði Búlandstinds séu framkvæmd samkvæmt áætlun og í samræmi við gæðakröfur.
- Leiða teymi og stuðla að jákvæðu og hvetjandi vinnuumhverfi.
- Starfa samkvæmt stefnu og reglum fyrirtækisins.
- Vinna náið með öðrum teymum félagsins.
Um Þig:
- Metnaður og drifkraftur í starfi.
- Leggur áherslu á nákvæmni.
- Tilbúin að bretta upp ermar og ganga í verkin.
- Æskileg reynsla af hreinlætismálum, gæðamálum eða matvælavinnslu.
- Góð samskiptahæfni og skipulagshæfni.
- Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
- Aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
- Niðurgreiddur hádegismatur í mötuneyti.
- Heilsustyrkur
- Tækifæri til að þróast í starfi
- Frábær starfsandi og virkt starfsmannafélag
Fiskvinnsla Kaldvíkur á Djúpavogi er með það að megin markmiði að reka framúrskarandi laxasláturhús og fiskvinnslu. Fyrirtækið er í örum vexti og með metnaðarfull framtíðarmarkmið um aukna framleiðslu og tæknivæðingu.
Hljómar þetta eins og starfi fyrir þig? Sendu inn umsókn og komdu með í spennandi vegferð!
Kaldvík samanstendur af sameinuðum félögum áður: Ice Fish Farm/Fiskeldi Austfjarða, Laxar Fiskeldi, Rifós og Búlandstindur













