Sólvangur hjúkrunarheimili
Sólvangur hjúkrunarheimili
Sólvangur hjúkrunarheimili

Aðstoðardeildarstjóri óskast!

Við leitum að hæfum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra til að styrkja okkar faglega teymi á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði. Starfið felur í sér ábyrgð á stjórnun hjúkrunar ásamt ábyrgð á þjónustugæðum og öryggi á deild. Um er að ræða 100% starfshlutfall í dagvinnu.

Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem vilja hefja sinn stjórnunarferil í stuðningsríku og hlýlegu umhverfi.

Við bjóðum upp á metnaðarfullt og fjölbreytt starf í faglegu og stuðningsríku umhverfi. Á Sólvangi starfar öflugur og fjölbreyttur hópur starfsfólks sem hefur mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúanna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðir og skipuleggur hjúkrun á deild í samráði við deildarstjóra
  • Ber meginábyrgð á klínískum viðfangsefnum og þjónustu við íbúa í samræmi við kröfur um þjónustu á hjúkrunarheimilum
  • Tryggir gæði og samfellu í þjónustunni í samstarfi við deildarstjóra
  • Tekur þátt í fræðslu og kennslu fyrir nýtt starfsfólk og nemendur
  • Ber ásamt deildarstjóra ábyrgð á móttöku nýrra íbúa
  • Tekur þátt í teymisvinnu og RAI mati
  • Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð klínísk færni og fagleg vinnubrögð
  • Hjúkrunarreynsla í öldrunarþjónustu kostur
  • Góð færni í verkefnastjórnun og teymisvinnu
  • Framhaldsnám í hjúkrun er mikill kostur
Fríðindi í starfi
  • Íþróttastyrkur
  • Niðurgreiddur hádegismatur
Nánari upplýsingar

veitir Fjóla Bjarnadóttir, forstöðumaður á netfangið [email protected]

Advertisement published15. April 2025
Application deadline27. April 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags