Barna og fjölskyldustofa
Barna og fjölskyldustofa

Ráðgjafar í kvöld- og helgarvinnu á nýtt meðferðarheimili

Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar tvær stöður ráðgjafa í tímabundnar stöður til eins árs á nýtt meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu.

Um er að ræða tvær 50% stöður ráðgjafa í vaktavinnu um kvöld og helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  •  Umönnun og gæsla skjólstæðinga.  
  • Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra og sálfræðinga. 
  • Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum.
  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
  • Vinna eftir verklagsreglum.
  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. við öryggisgæslu, meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarf.
  •  Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
  • Gild ökuréttindi.
  •  Hreint sakavottorð.
  • Einnig er lögð áhersla á persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga, áhuga á að starfa með ungmennum.
Advertisement published23. January 2025
Application deadline3. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags