Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins fyrir unglinga
Barnaverndarstofa hefur í aldarfjórðung verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og innleiðingu gagnreyndra aðferða.
Ráðgjafar á Stuðlum
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausar til umsóknar fimm stöður ráðgjafa á meðferðarheimilinu Stuðlum. Störfin eru vegna aukinna umsvifa hjá stofnuninni. Um er að ræða 100% stöður ráðgjafa í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun og gæsla skjólstæðinga.
- Einstaklingsbundinn stuðningur við skjólstæðinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra og sálfræðinga.
- Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með skjólstæðingum.
- Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
- Vinna eftir verklagsreglum Stuðla.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
- Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. við öryggisgæslu, meðferðar-, tómstunda- eða íþróttastarf.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
- Gild ökuréttindi.
- Hreint sakavottorð.
- Einnig er lögð áhersla á persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
Advertisement published21. October 2024
Application deadline31. October 2024
Language skills
IcelandicVery good
Location
Fossaleynir 17, 112 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (7)
Ráðgjafar á nýtt meðferðarheimili í Skálatúni
Barna- og fjölskyldustofa
Afgreiðsla og ráðgjöf
Lyfjaver
Virknifulltrúi
Hrafnista
Sérfræðingur í málefnum barna
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á barna- og unglingageðdeild
Landspítali
Viltu vinna sem jafningi í geðþjónustu Landspítala?
Landspítali
Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær