
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa er leiðandi í þjónustu í þágu farsældar barna. Hjá stofnuninni starfa um 150 manns í fjölbreyttum störfum á starfsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu, á Hellu og í Eyjafjarðarsveit. Stofnunin heyrir undir Barna- og menntamálaráðuneytið.
Meginverkefni Barna- og fjölskyldustofu er að veita fræðslu, ráðgjöf og handleiðslu á sviði barnaverndar og samþættingar þjónustu í þágu farsældar barna.
Stofnunin leggur mat á væntanlega fósturforeldra, heldur fósturforeldranámskeið ásamt því að veita fósturforeldrum ráðgjöf og stuðning.
Veitir börnum, innan barnaverndar, þjónustu sem lýtur að sérhæfðum meðferðarúrræðum (Stuðlar, Lækjarbakki og Bjargey), fjölkerfameðferð MST og starfsemi Barnahúss.
Auk þess leggur stofan áherslu á fræðilegar rannsóknir og stuðning við þróunar- og rannsóknarstarf ásamt uppsetningu og innleiðingu á samræmdum gagnagrunni í barnavernd á landsvísu.
Meginmarkmið Barna- og fjölskyldustofu:
• Veita framúrskarandi þjónustu í þágu farsældar barna með áherslu á gæðaþróun og stafrænar lausnir.
• Vera í fararbroddi í fræðslu og leiðsögn við þá sem veita börnum og fjölskyldum þjónustu.
• Veita fjölbreytt og sérhæfð úrræði fyrir börn byggð á gagnreyndum aðferðum.
• Stofnunin búi yfir fjölbreyttum starfshóp sem er faglegur og kraftmikill.

Ráðgjafar á meðferðarheimilið Blönduhlíð
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum? Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða ráðgjafa á Blönduhlíð, meðferðarheimili fyrir unglinga sem starfrækt er tímabundið í húsnæði Vogs. Um er að ræða tvær 100% stöður í vaktavinnu sem heyra undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun og gæsla unglinga.
- Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, verkefnastjóra, sálfræðinga og forstöðumann.
- Meðferðarvinna og vinna að tómstundastarfi með unglingum.
- Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
- Vinna eftir verklagsreglum.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og/eða menntun sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi, t.d. í meðferðar-, tómstunda-, íþróttastarfi eða öryggisgæslu.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.
- Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
- Gild ökuréttindi.
- Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.
Advertisement published27. August 2025
Application deadline10. September 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (6)

Ráðgjafi í kvöld- og helgarvinnu á meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Neyðarverðir
Neyðarlínan

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar í útkallsteymi yfirsetu
Landspítali

Ráðgjafar á nýtt stuðningsheimili fyrir unglinga á höfuðborgarsvæðinu
Barna- og fjölskyldustofa

Iðjuþjálfi eða annar fagaðili í ráðgjafarteymi fullorðinna
Velferðarsvið Kópavogsbæjar