
Sveitarfélagið Ölfus
Okkur vantar skólaliða. Vertu með í frábærum hóp!
Grunnskólinn í Þorlákshöfn leitar að skólaliða fyrir næsta skólaár en um er að ræða
afleysingu í eitt skólaár. Ráðið verður í stöðuna frá og með 15. ágúst 2026.
Í skólanum eru um 290 nemendur og eru starfsmenn 70 talsins. Skólinn vinnur
samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar og teymiskennslu auk þess sem
unnið er að innleiðingu leiðsagnarnáms. Þá tekur skólinn þátt í verkefninu um
Grænfána og Heilsueflandi skóla. Einkunnarorð skólans eru vinátta, virðing og
velgengni.
Viltu vita meira? Kíktu þá á heimasíðuna okkar: https://www.olfus.is/grunnskolinn
Um er að ræða 80-100% stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ræsting á skólahúsnæði.
- Almenn gæsla og aðstoð við nemendur.
- Gæsla í frímínútum og í mötuneyti skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Góð íslenskukunnátta.
- Reynsla af starfi með börnum er kostur.
- Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði
Advertisement published24. April 2026
Application deadline8. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Egilsbraut 35, 815 Þorlákshöfn
Type of work
Skills
PositivityAmbitionConscientiousPunctualPatience
Professions
Job Tags
Other jobs (2)

