atNorth
atNorth

Öryggisfulltrúi / Rafvirki

atNorth er að stækka starfsemi sína á Fitjum, Reykjanesbæ og leitar að kraftmiklum reynslubolta í starf öryggisfulltrúa með reynslu og menntun í rafvirkjun. Viðkomandi mun einnig sinna verkefnum tengdum rafvirkjun.

Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stuðla að öryggi á vinnustaðnum og að unnið sé í samræmi við lög og reglugerðir
  • Áætlanir, úrbætur og eftirfylgni í tengslum við frávik og verkferla
  • Öryggiseftirlit og úttektir með áherslu á rafmagnsöryggi
  • Leiða, þjálfa og styðja starfsfólk í tengslum við öryggismál, með áherslu á lág- og háspennu
  • Áhættumat og flokkun áhættu
  • Uppsetning, eftirlit og viðhald rafkerfa
  • Vinna að stöðugum endurbótum og þróun öryggisferla og aðferða í nánu samstarfi við starfsfólk og verktaka
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og reynsla í rafvikjun / rafmagnstæknifræði
  • Önnur menntun sem nýtist í starfi kostur
  • Haldbær reynsla af verkefnum tengdum öryggismálum, heilbrigðis og/eða umhverfismálum
  • Þekking á lögum og regluverki í tengslum við öryggismál
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum
  • Leiðtogahæfni, skipulagshæfni og nákvæmni
  • Góð kunnátta í ensku, bæði skrifleg og töluð
  • Nákvæm vinnubrögð og gott skipulag
Helstu kostir þess ad vinna hjá atNorth eru
  • Við tryggjum að þú fáir viðeigandi þjálfun, símenntun og aðgang að þekkingu varðandi rekstur gagnavera
  • Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
  • Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
  • Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
  • Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
  • Fjarskiptapakki og símastyrkur
  • Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
  • Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndunum
Advertisement published1. July 2026
Application deadline12. July 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Fitjar 1, 260 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags