Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf

Húsumsjón - framtíðarstarf hjá leiðandi þjónustufyrirtæki

Eignaumsjón hf. leitar að öflugum og þjónustumiðuðum einstaklingi til starfa við Húsumsjón.

Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf fyrir laghentan aðila sem hefur áhuga á að bæta umhverfi fasteigna, sjá tækifæri til umbóta og veita framúrskarandi þjónustu.

Um Húsumsjón
Húsumsjón er sérhæfð þjónusta fyrir hús- og rekstrarfélög sem tryggir markvissa umsjón með sameign fasteigna. Þjónustan stuðlar að lægri viðhaldskostnaði, auknu öryggi og bættri ásýnd fasteigna til lengri tíma.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er laghentur, iðnmenntun er mikill kostur
  • Hefur umbótahugsun og sér tækifæri til að gera betur
  • Er þjónustulundaður og á auðvelt með samskipti
  • Sýnir frumkvæði og ber ábyrgð á eigin verkefnum
  • Hefur góða almenna tölvufærni og er tilbúinn að tileinka sér ný kerfi
  • Er skipulagður og vinnur vel sjálfstætt sem og í hóp
Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og eftirlit með sameign fasteigna
  • Létt viðhald og almenn umhirða
  • Eftirlit með verktökum og öðrum þjónustuaðilum
  • Samskipti við eigendur og íbúa
  • Skráning og skýrslugerð
  • Greining á tækifærum til úrbóta
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Æskileg er reynsla úr starfi sem tengist viðhaldi eða iðnaði
  • Góð íslenskukunnátta í tali og riti
  • Gild ökuréttindi
  • Reglusemi og áreiðanleiki
  • Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
  • Mötuneyti
  • íþróttastyrkur
  • Öflug skemmtinefnd og góður starfsandi
Advertisement published23. June 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Optional
Basic skills
Location
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags