Alor ehf.
Alor ehf.

Rafvirki í nýsköpunarverkefni

Nýsköpunarfyrirtækið Alor ehf. óskar eftir að ráða rafvirkja í þróunarverkefni þar sem notuðum rafbílarafhlöðum er gefið nýtt líf sem rafhlöðuorkugeymslur (BESS lausnir). Verkefnið er á spennandi þróunarstigi þar sem nýr starfsmaður fær tækifæri til þess að taka þátt í áframhaldandi þróun og aðstoða við að leggja grunninn að nýrri kynslóð íslenskra orkugeymslulausna.

Hjá Alor vinnur samhentur hópur sérfræðinga að lausnum sem styðja við orkuskipti og draga úr sóun verðmætra auðlinda. Leitað er eftir rafvirkja sem hugsar í lausnum, hefur gaman af fjölbreyttum áskorunum og kann að meta að fáir dagar eru eins.

Helstu verkefni og ábyrgð

-          Samsetning, tenging og prófun rafhlöðuorkugeymslna úr endurnýttum rafbílarafhlöðum.

-          Raflagnir, frágangur og tengingar.

-          Þátttaka í þróun og endurbótum á búnaði.

-          Bilanagreining og mælingar.

-          Viðhald og þjónusta.

-          Uppsetning og gangsetning orkugeymslna hjá viðskiptavinum.

-          Tenging sólarorkukerfa við rafhlöðuorkugeymslur.

Menntunar- og hæfniskröfur

-          Sveinspróf í rafvirkjun er skilyrði.

-          Lausnamiðuð hugsun og eiginleikar til að bregðast við fjölbreyttum áskorunum.

-          Sjálfstæð vinnubrögð.

-          Lipurð í samskiptum og gott frumkvæði.

-          Bílpróf.

-          Hreint sakavottorð.

-          Góð færni í íslensku og ensku.

Advertisement published15. June 2026
Application deadline7. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Grandagarður 16, 101 Reykjavík
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags