Öflugur mannauðsráðgjafi óskast til starfa í eitt ár
Velferðarsvið Kópavogsbæjar auglýsir eftir öflugum og drífandi einstaklingi í starf mannauðsráðgjafa á skrifstofu sviðsstjóra. Um er að ræða afleysingu til eins árs vegna fæðingarorlofs.
Mannauðsráðgjafi heyrir undir sviðsstjóra og starfar í náinni samvinnu við hann og aðra stjórnendur á sviðinu. Á skrifstofu sviðsstjóra starfa auk þess tveir verkefnastjórar. Mannauðsráðgjafi velferðarsviðs er virkur þátttakandi í innleiðingu mannauðsstefnu sem og í mótun og innleiðingu stefna og verkferla á sviði mánnauðsmála. Mannauðsráðgjafi velferðarsviðs situr í mannauðsteymi Kópavogsbæjar, sem starfar undir mannauðsstjóra. Mannauðsráðgjafi er einnig í nánu samstarfi við miðlæga launadeild og lögfræðideild bæjarins.
Mannauðsráðgjafi ber ábyrgð á mannauðsmálum velferðarsviðs í samráði við sviðsstjóra og aðra stjórnendur á sviðinu. Hlutverk hans er að stuðla markvisst að auknum gæðum og framþróun í mannauðsmálum innan sviðsins og sinna ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk hvað varðar starfsmannamál, m.a. í fyrirbyggjandi tilgangi, með því markmiði að styrkja og efla starfsfólk velferðarsviðs. Mannauðsráðgjafi vinnur jafnframt að innleiðingu og eftirfylgni ferla og stefna í samstarfi með mannauðsdeild.
- Ber ábyrgð á mannauðsmálum í samráði við sviðsstjóra og veitir ráðgjöf og stuðning til stjórnenda.
- Styður stjórnendur innan sviðsins við úrlausn þeirra starfsmannamála sem upp koma og er ráðgefandi í þeim efnum.
- Umsjón með innleiðingu og eftirfylgni vinnuferla er varða ráðningar og móttöku nýs starfsfólks á sviðinu.
- Umsjón með innleiðingu mannauðsstefnu Kópavogsbæjar á velferðarsviði.
- Þátttaka í vinnuhópum á sviði mannauðs og starfsumhverfis eftir því sem við á.
- Ber ábyrgð á og skipuleggur starfsmannafundi sviðsins í samráði við sviðsstjóra og sér um mánaðarlegt fréttabréf sviðsins.
- Vinnur að mótun liðsheildar og góðrar vinnustaðamenningar.
- Háskólapróf á framhaldsstigi (MA, MSc) á sviði mannauðsstjórnunar eða annað sambærilegt nám sem nýtist í starfi er skilyrði.
- A.m.k. 2ja ára reynsla af starfi í mannauðsmálum er æskileg.
- Reynsla og þekking af velferðarþjónustu og stjórnsýslu sveitarfélaga er mikill kostur.
- Reynsla og þekking af breytingastjórnun og innleiðingu breytinga er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni, skipulagshæfileikar og lausnamiðuð nálgun.
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, frumkvæði, eljusemi, seigla og metnaður.
- Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
- 36 stunda vinnuvika
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur