Akureyri
Akureyri
Akureyri

Oddeyrarskóli: Náms- og starfsráðgjafi

Við Oddeyrarskóla er laus til umsóknar 20 - 40% ótímabundin staða náms- og starfsráðgjafa.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2026.

Í Oddeyrarskóla er áhersla lögð á samvinnu starfsfólks og vellíðan nemenda. Þar er unnið að því að skapa skólasamfélag sem einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT skólafærni og er heilsueflandi grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta og lögð er áhersla á að þau setji mark sitt á allt starf í skólanum. Oddeyrarskóli er fámennasti hverfisskólinn á Akureyri með um 180 nemendur.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is

Leitað er að jákvæðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans. Hlutverk námsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nemenda og veita ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Náms- og starfsráðgjafi veitir nemendum ráðgjöf um náms- og starfsval og fræðslu um nám, störf og atvinnulíf.
  • Heldur utan um skipulag náms- og starfsfræðslu í skólanum.
  • Undirbýr nemendur undir flutning milli skóla og/eða skólastiga og fylgir þeim eftir inn í framhaldsskóla.
  • Aðstoðar nemendur við að gera sér grein fyrir eigin áhuga­sviðum og meta hæfileika sína raunsætt miðað við nám og störf.
  • Sinnir fyrirbyggjandi starfi, til dæmis vörnum gegn vímuefnum, einelti og ofbeldi í samstarfi við starfsmenn skóla og aðra, svo sem starfsmenn félagsmiðstöðva.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Náms- og starfsráðgjafa menntun
  • Farsæl reynsla af starfi í grunnskóla
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reglusemi, samviskusemi og stundvísi.
  • Áhugi á þróunarstarfi.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published29. May 2026
Application deadline10. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.CreativityPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PrecisionPathCreated with Sketch.Job/school counselorPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team workPathCreated with Sketch.MeticulousnessPathCreated with Sketch.Customer servicePathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags