

Oddeyrarskóli: Kennari í ÍSAT
Við Oddeyrarskóla er laus til umsóknar staða kennara í ÍSAT, íslenska sem annað tungumál, í 50-60% stöðu. Ráðningin er tímabundin skólaárið 2026-2027 með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Ráðið er frá 01.08.2026.
Í Oddeyrarskóla er áhersla lögð á samvinnu starfsfólks og vellíðan nemenda. Þar er unnið að því að skapa skólasamfélag sem einkennist af jákvæðum skólabrag, áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT skólafærni og er heilsueflandi grunnskóli. Einkunnarorð skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta og lögð er áhersla á að þau setji mark sitt á allt starf í skólanum. Oddeyrarskóli er fámennasti hverfisskólinn á Akureyri með um 180 nemendur.
Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.oddeyrarskoli.is
Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.
Starfssvið:
Kennari er hluti af kennarateymi skólans, sinnir kennslu nemenda í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra. ÍSAT kennari hefur sinnir kennslu í íslensku sem öðru tungumáli og hefur aðkomu að aðlögun námsefnis í samráði við aðra kennara skólans.
- Kennaramenntun og leyfi til kennslu í grunnskóla
- Framhaldsmenntun er kostur
- Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og hæfileikum nemenda
- Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Þekking á upplýsingatækni og leiðum til að nýta tækni í kennslu
- Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum
- Góðir skipulagshæfileikar
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Reglusemi, samviskusemi og stundvísi
- Áhugi á kennslu og vinnu með börnum
- Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Icelandic

















