Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Nýtt tækifæri: Hjúkrunarfræðingur í fjarvinnu

Heilsugæslan á Seltjarnarnesi og Vesturbæ leitar að hjúkrunarfræðingi í fjarvinnu. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs, þar sem hjúkrunarfræðingur mun sinna forflokkun erinda úr Heilsuveru í fjarvinnu.

Öll erindi skjólstæðinga verða forflokkuð af hjúkrunarfræðingi og komið í réttan farveg til þess heilbrigðisstarfsmanns sem best er til þess fallinn að leysa úr þeim hverju sinni. Með slíkri forflokkun erum við að nýta sérfræðiþekkingu allra heilbrigðisstétta sem starfa á heilsugæslu. Þetta er verkefni sem krefst sjálfstæðis, öryggis í klínísku mati og næmni fyrir þörfum skjólstæðinga.

Starfið er unnið í fjarvinnu og er skilyrði að viðkomandi hafi sérstakt rými til vinnu sem tryggir vinnufrið og örugga meðferð upplýsinga.

Fyrstu daga eða vikur mun viðkomandi starfa á heilsugæslustöðinni til að kynnast starfseminni, verkferlum og samstarfsfólki. Lengd þessa tímabils fer eftir reynslu viðkomandi, en mikilvægt er að tryggja trausta þekkingu á verkferlum og farvegum innan heilsugæslunnar áður en fjarvinna hefst. Að þjálfunartímabili loknu færist starfið yfir í fjarvinnu.

Við leitum að einstaklingi í 50-100% starf en erum opin fyrir samtali um lægra starfshlutfall. Æskilegt væri að viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.

Heilsugæslan á Seltjarnarnesi er fjölskylduvænn vinnustaður með frábærum starfsanda og góðri samvinnu milli fagstétta. Hjá okkur ríkir traust og gagnkvæm virðing og leggjum við mikla áherslu á starfsfólki okkar líði vel í vinnu, hvort sem starfið er á stöðinni eða utan.

Nánari upplýsingar um starfsemi heilsugæslunnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Helstu verkefni:

  • Forflokkun erinda sem berast heilsugæslunni í gegnum Heilsuveru skilaboð.

  • Meta innihald erinda og afla frekari upplýsinga þegar þörf krefur og tryggja að hvert erindi fái viðeigandi úrlausn eða berist í réttan farveg til viðeigandi heilbrigðisstarfsmanns samkvæmt verklagi.

  • Starfið felur jafnframt í sér náið samstarf og samskipti við annað starfsfólk heilsugæslunnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Þekking á Heilsuveru
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð tölvukunnátta
Advertisement published5. August 2026
Application deadline17. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.NursePathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Team work
Work environment
Professions
Job Tags