

Móttökuritari á tannlæknastofu
Tannlæknastofa í Hafnarfirði óskar eftir þjónustuliprum og áreiðanlegum móttökuritara til að starfa. Um er að ræða tímabundið starf til 1. apríl 2026 með möguleika á áframhaldandi starfi.
Við leitum eftir einstaklingi sem er fljótur að læra, með mikla þjónustulund og áhuga á fjölbreyttum verkefnum í krefjandi en gefandi starfsumhverfi. Starfið felur í sér mikil samskipti við viðskiptavini og samstarfsfólk, sem krefst bæði sjálfstæðis og samstarfshæfileika.
-
Almenn umsjón með bókunum og afgreiðslu skjólstæðinga
-
Ritarastörf og svörun fyrirspurna í tölvupósti
-
Símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina
-
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann
-
Góð færni í samskiptum, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
-
Stundvísi, áreiðanleiki og hæfni til að vinna í tímasettum verkefnum
-
Góð almenn tölvukunnátta (Word, Outlook)
-
Mjög góð íslenskukunnátta, bæði töluð og rituð
-
Góð enskukunnátta













