
Velferðarsvið Kópavogsbæjar
Velferðarsvið Kópavogsbæjar veitir fjölbreytta og metnaðarfulla velferðarþjónustu sem hefur það að meginmarkmiði að stuðla að auknum lífsgæðum íbúa.
Á sviðinu starfar hópur 650 öflugra og fjölbreyttra einstaklinga með mismunandi menntun og þekkingu sem brenna fyrir málefnum velferðarþjónustunnar með hag þjónustunotenda að leiðarljósi. Fjölbreytileiki mannauðs velferðarsviðs endurspeglar umfang málaflokka þjónustunnar sem hafa vaxið á undanförnum árum í takt við lagabreytingar og nýjar áherslur í þjónustu til handa íbúum.
Starfsfólk sviðsins leitast við að skapa trausta ímynd og sýna hlutlægni, umhyggju og virðingu í verki gagnvart íbúum Kópavogsbæjar og öðru starfsfólki. Áhersla er lögð á árangursríka, skilvirka og hagkvæma þjónustu og gott samstarf við önnur svið bæjarins.
Velferðarsvið skiptist samkvæmt nýju skipulagi í fimm fagskrifstofur; skrifstofu barnaverndarþjónustu, skrifstofu félagslegs húsnæðis, skrifstofu ráðgjafar, skrifstofu starfsstöðva og þróunar og skrifstofu þjónustu og sértækrar ráðgjafar. Stoðskrifstofur eru tvær; skrifstofa sviðsstjóra og skrifstofa rekstrar.

Miðjan auglýsir eftir starfsfólki í heimaþjónustu á dagvinnutíma
Miðjan, miðstöð stuðings- og stoðþjónustu óskar eftir starfsfólki í heimaþjónustu á dagvinnutíma virka daga.
Markmið þjónustunnar er að veita þeim sem þurfa, aðstoð við daglegar athafnir á borð við:
- Stuðning við þrif
- Félagslegan stuðning
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
- Stundvísi, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Reglusemi, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
- Gott vald á íslensku er skilyrði
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
- Nauðsynlegt að hafa bíl til umráða
Advertisement published4. September 2026
Application deadline15. September 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Vallakór 4, 203 Kópavogur
Type of work
Skills
PositivityIndependencePunctualTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Campsite Agent
Tjaldsvæðið í Laugardal

Starfsmenn í heimaþjónustu í Fjarðabyggð
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Housekeeping part time, 80% - SOUTH ICELAND
Panorama Glass Lodge

Nettó Borgarnesi - hlutastarf á kvöldin og um helgar
Nettó

Fjöllbreytt störf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf

Skólaliði í þrif í Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli

Housekeeping / Cleaning
Heimaleiga

Housekeeping Supervisor
Hótel Jökulsárlón

Herbergisþrif | Housekeeping
Íslandshótel

NPA aðstoðarfólk óskast
NPA miðstöðin

Factory cleaning in Akranes - part time
Dictum

Factory cleaning
Dictum