Markaðsfulltrúi - Sölu- og markaðsdeild
Iceland Hotel Collection by Berjaya er að leita að drífandi og hugmyndaríkum markaðsfulltrúa í fullt starf með starfsstöð annað hvort á Akureyri eða í Reykjavík. Ráðning er tímabundin í ár með möguleika á framlengingu og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Starfið felur meðal annars í sér textaskrif og ritstjórn á samfélagsmiðlum og vefsíðum auk þátttöku í mótun stafrænna herferða fyrir hótel og veitingastaði.
Þátttaka í hugmyndavinnu og mótun herferða
Samskipti við samstarfsaðila markaðsdeildar varðandi gerð markaðsefnis, birtingar ofl.
Uppfærsla á myndefni og texta á heimasíðum hótelanna og bókunarvél
Þátttaka í gerð efnis og ritstjórn fyrir samfélagsmiðla og vefsíður félagsins
Einföld auglýsingagerð
Önnur tilfallandi verkefni
Haldgóð menntun sem nýtist í starfi
Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Sköpunargleði
Þekking og reynsla af hönnunar- og uppsetningarforritum er stór kostur
Skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð
Bíll til umráða
Svigrúm til að ferðast á milli landsbyggðarhótelanna og dvelja þar til skemmri tíma ef þörf er á