Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Manufacturing Engineer - Bionics | Össur

Langar þig að vera hluti af drífandi og sterkri liðsheild innan stoðtækjaframleiðslu Össurar?

Össur leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í Bionics framleiðsludeild fyrirtækisins á Íslandi. Teymið vinnur að framleiðsluferlum tölvustýrðra stoðtækja og er leiðandi í innleiðingu á umbótum og nýjum vörum. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi og unnin í nánu samstarfi við önnur teymi, svo sem vöruþróun, gæðadeild, innkaupadeild og vörustjóra. Við leitum að skipulögðum, drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ástríðu fyrir verkefnum sem bæta lífsgæði og hreyfanleika fólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka við þróun og innleiðingu nýrra vara.
  • Vinna við stöðugar umbætur á ferlum í framleiðslu.
  • Vinna að gæðamálum í framleiðslu
  • Eftirfylgni með vörum á markaði.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc eða M.Sc. í verk-  eða tæknifræði
  • Brennandi áhugi á vöruþróun, framleiðslu og umbótum ferla
  • Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean) er kostur 
  • Reynsla af notkun SolidWorks eða sambærilegra 3D CAD kerfa er kostur 
  • Þekking á forritun (C# eða sambærilegt) er kostur 
  • Hæfni á sviði gagna- og kostnaðargreininga 
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu 
  • Metnaður og jákvæðni 
  • Mjög góð enskukunnátta 
Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur   

  • Samgöngustyrkur   

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir   

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat  

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf  

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur   

  • Sveigjanlegur vinnutími 

  • Starfsþróun 

  • Öflugt félagslíf 

Advertisement published19. November 2026
Application deadline1. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LeanPathCreated with Sketch.TechnologistPathCreated with Sketch.Engineer
Professions
Job Tags