Eimskip
Eimskip er alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem sinnir gáma- og frystiflutningum í Norður-Atlantshafi og sérhæfir sig í flutningsmiðlun með áherslu á flutninga á frosinni og kældri vöru. Með siglingakerfi sínu tengir Eimskip saman Evrópu og Norður-Ameríku í gegnum Ísland. Félagið starfrækir 56 skrifstofur í 20 löndum og hefur á að skipa fjölbreyttum hópi starfsfólks en í heildina starfa um 1.700 manns af 43 þjóðernum hjá félaginu.
Mannauðssérfræðingur
Eimskip leitar að reynslumiklum og kröftugum mannauðssérfræðingi.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í alþjóðlegu umhverfi hjá framsæknu og traustu fyrirtæki.
Starfið er á Mannauðs- og samskiptasviði félagsins sem starfar þvert á Eimskips samstæðuna, en sviðinu tilheyra m.a. mannauðs-, markaðs-, samskipta- og sjálfbærnimál.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með mannauðsmálum í samvinnu við starfsfólk í mannauðsdeild
- Stuðningur og ráðgjöf við stjórnendur og starfsfólk
- Önnur mannauðstengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði mannauðsstjórnunar
- Reynsla af mannauðsmálum
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Góð tölvukunnátta og færni til að læra á ný kerfi
- Mikil skipulagshæfni og jákvætt viðhorf
- Sjálfstæði, frumkvæði og hæfni til þess að vinna undir álagi
- Framúrskarandi samskiptafærni og rík þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Öflugt Starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakki fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
- Gott mötuneyti og matur niðurgreiddur fyrir starfsfólk
- Farsímaáskrift og net heima
- Nútímaleg vinnuaðstaða
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
Advertisement published20. September 2024
Application deadline29. September 2024
Language skills
IcelandicVery good
EnglishVery good
Location
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PositivityHuman resourcesHuman relationsIndependencePlanning
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)
Þjónustu- og skrifstofufulltrúi
SOS Barnaþorpin
Þjónustufulltrúi
Tryggingar og ráðgjöf ehf.
Forstöðumaður sölu- og viðskiptalausna á Innanlandssviði
Eimskip
Sérfræðingur í lífeyrisdeild
Gildi
Símsvörun - þjónustuver
Teitur
Þjónustufulltrúi á fullnustu- og skiptasviði
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
People Operations Specialist
Sidekick Health
Mannauðssérfræðingur
Háskólinn í Reykjavík
Skrifstofustarf
Reykjafell
Sérfræðistörf á Akureyri á þjónustu- og upplýsingasviði
Skatturinn
Þjónustufulltrúi og bókari.
Vörubílastöðin Þróttur hf
Starfsmaður á skrifstofu
Bortækni ehf