Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Lyfjafræðingur - Apótekarinn á Akureyri

Lyfjafræðingur á Akureyri

Apótekarinn óskar eftir lyfjafræðingi til starfa í apótekum félagsins á Akureyri.

Vinnutími - samkomulag.

Starfssvið:

Fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu.

Hæfniskröfur:

  • Háskólapróf í lyfjafræði
  • Gilt starfsleyfi
  • Brennandi áhugi á þjónustu
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í hóp

Hvað býður Apótekarinn?

  • Frábær samvinna innan keðju apóteka
  • Samkeppnishæf laun
  • Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Augastað Gleraugnaverslana
  • Öflugt starfsmannafélag
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Skóstyrkur


Nánari upplýsingar um starfið veita

Fríður Skeggjadóttir, mannauðs- og gæðastjóri [email protected] og
Eygló Kristinsdóttir, verkefnastjóri á mannauðssviði [email protected]

Um Apótekarann:

Apótekarinn rekur í dag 27 lyfjaverslanir og 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, Lyfjaskömmtun Apótekarans og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.

Advertisement published30. October 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Type of work
Work environment
Suitable for
Professions
Job Tags