
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan er meðal stærstu verslunarfyrirtækja landsins og hluti af Bygma Gruppen A/S. Bygma rekur fjölmargar byggingavöruverslanir í Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum og á Grænlandi. Ásamt því rekur fyrirtækið nokkur heildsölufyrirtæki á byggingavörumarkaði í Danmörku.
Húsasmiðjuverslanir eru 16 talsins og eru Blómavalsútibú í sjö þeirra. Jafnframt er rafiðnaðarverslunin Ískraft með fjögur útibú.
Hjá Húsasmiðjunni starfa um 500 starfsmenn vítt og breytt um landið sem hafa margskonar bakgrunn eins og pípari, blómaskreytir, bókari, smiður, viðskiptafræði, grafískur hönnuður, múrari og fleira og fleira.
Húsasmiðjan býður upp á lifandi starfsumhverfi og frábæran starfsanda. Við leggjum mikla áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.

Egilsstaðir: Deildarstjóri verkfæra og festinga
Hefur þú góða þekkingu á verkfærum og festingum og langar að nýta hana í ráðgjöf og sölu?Hjá Húsasmiðjunni færðu tækifæri til að vinna með fagfólki, veita ráðgjöf og hjálpa bæði einstaklingum og fagfólki að velja réttu verkfærin og lausnirnar fyrir verkefnin sín.
Við leitum að öflugum liðsmanni til að leiða verkfæra- og festingadeild Húsasmiðjunnar á Egilsstöðum. Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hefur reynslu úr byggingariðnaði eða af sölu og notkun verkfæra og vill nýta fagþekkingu sína í fjölbreyttu starfi.Iðnmenntun eða reynsla af verkfærum og festingum er mikill kostur. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla þekkingu sinni, sýnir frumkvæði og hefur metnað fyrir góðri þjónustu og rekstri deildarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg ráðgjöf um verkfæri, festingar og tengdar vörur.
- Sala og þjónusta við einstaklinga og fagfólk.
- Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda við iðnaðarmenn og fyrirtæki.
- Dagleg umsjón með verkfæra- og festingadeild.
- Pantanir og birgðastýring.
- Framsetning vara og útstillingar.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð þekking á verkfærum, festingum og notkun þeirra.
- Iðnmenntun eða reynsla úr byggingariðnaði eða af sölu verkfæra og festinga er mikill kostur.
- Metnaður fyrir því að veita faglega ráðgjöf og framúrskarandi þjónustu.
- Góð samskiptafærni og hæfni til að byggja upp traust við viðskiptavini og samstarfsfólk.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði, ábyrgð og áhugi á að ná árangri í starfi.
- Áhugi á sölu og þjónustu.
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Fríðindi í starfi
- Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
- Aðgangur að orlofshúsum.
- Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
- Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Advertisement published29. October 2026
Application deadline12. November 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Sólvangur 7, 700 Egilsstaðir
Type of work
Skills
PositivityAmbitionConscientiousIndependenceSalesCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsmaður í Hertex Akureyri
Hjálpræðisherinn

Sölufulltrúar óskast í verslun okkar á Keflavíkurflugvelli.
ICEWEAR

Útilíf - Sölustarf í verslun
Útilíf ehf.

Sölu- og þjónustufulltrúi AVIS
Avis og Budget

Hönnun og ráðgjöf á skiltum og merkingum
Signa ehf

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Starfsfólk í verslun - Skeifan
JYSK

Íþróttamiðstöðin Urriðaholti - vaktavinnufólk
Garðabær

Sölumaður í verslun - Dressmann Smáralind & Dressmann XL
Dressmann á Íslandi

Söluráðgjafi rafbúnaðar hjá Johan Rönning í Reykjanesbæ
Johan Rönning

Sölu- og þjónusturáðgjafi á sölusviði
Skeljungur ehf

Fullt Starf & Hlutastarf í Ríteil
Ríteil