
Lyfjafræðingur
Austurbæjar Apótek óskar eftir lyfjafræðingi í 100% starf. Starfið er fjölbreytt og krefjandi í lifandi og notarlegu umhverfi. Leitað er að aðila sem er faglegur og ábyrgur í störfum, þjónustulundaður og lausnarmiðaður. Sjálfstæður í vinnubrögðum en jafnframt sterkur liðsmaður.
Ferilskrá og kynningarbréf sendist til [email protected]
Við hvetjum áhugasama lyfjafræðinga til að sækja um og verða hluti af öflugu og samheldnu teymi.
Lyfja- og vöruafgreiðsla, fagleg ráðgjöf til viðskiptavina , umsjón með birgðum og lyfjum, pantanir til birgja og önnur störf sem eru hefðbundin innan apóteks.
Fullgild lyfjafræðimenntun og gilt starfsleyfi á Íslandi. Góð samskiptafærni og þjónustulund. Skilyrði að tala íslensku.
Samkeppnishæf og góð laun. Faglegt og styðjandi starfsumhverfi. Sveigjanleika og jákvæðan starfsanda.
Icelandic





