Lyfja
Lyfja
Lyfja

Lyfja Smáralind - þjónusta og ráðgjöf

Við leitum að jákvæðum og sjálfstæðum einstaklingi með ríka þjónustulund í sölu- og afgreiðslu í lyfjaverslun okkar, Lyfju Smáralind. Starfið felst í að veita almenna ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum og að tryggja góða þjónustuupplifun. Um er að ræða skemmtilegt og fjölbreytt starf á líflegum vinnustað þar sem í boði eru samkeppnishæf laun og gott vinnuumhverfi.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Þjónusta og almenn afgreiðlustörf
  • Áfyllingar í verslun
  • Afgreiðsla lausasölulyfja

Hvaða hæfni þarft þú að hafa?

  • Ríka þjónustulund og gott viðmót
  • Áhuga á mannlegum samskiptum
  • Áhuga á heilsu og vellíðan
  • Reynslu af verslunarstörfum

Starfið:

Vinnutími er frá 12:00-17:00 alla virka daga og möguleiki er á helgarvöktum.

Umsækjandi þarf að hafa ágæta íslensku- og enskukunnáttu og hafa náð 20 ára aldri.

Hvers vegna Lyfja?

Lyfja er leiðandi fyrirtæki í íslenskri heilbrigðisþjónustu með það að markmiði að lengja líf og bæta lífsgæði landsmanna. Við leggjum áherslu á faglega og hlýlega þjónustu, heilsueflingu og stöðuga nýsköpun.

Við leggjum okkur fram um að skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk upplifir jákvæðan starfsanda, fær tækifæri til að þróast í starfi og nýtir hæfileika sína til fulls. Við bjóðum upp á öfluga fræðslu, markvissa starfsþróun og leggjum mikla áherslu á gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Lyfja rekur 44 apótek og útibú víðs vegar um landið, sem gefur starfsfólki kost á fjölbreyttum og spennandi tækifærum, hvar sem er á landinu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Inga Lilý Gunnarsdóttir, lyfsali Lyfju Smáralind í síma 530-5800 og á [email protected]

Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Advertisement published31. March 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags